151. löggjafarþing — 48. fundur,  26. jan. 2021.

öflun og dreifing bóluefnis, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:34]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður spyr um öflun bóluefnisins. Í minnisblaði mínu til velferðarnefndar var farið yfir þetta ítarlega í rituðu máli til þingsins að beiðni nefndarinnar, sem er mjög mikilvægt. Eins og hv. þingmaður veit hafa lyfjafyrirtæki heimsins lagt mikla áherslu á þróun bóluefnisins og mörg hafa frestað öðrum verkefnum á meðan en til að svona átak sé mögulegt þarf fjármagn að liggja fyrir þannig að ríki og ríkjasambönd þurftu að fjármagna þróun bóluefnanna án þess að vita hvenær afurðin myndi síðan líta dagsins ljós. Ríki þurftu því að greiða fyrir fram talsverðar upphæðir í von um að þróun bóluefna gengi eftir. Á meðal Norðurlandanna hófst óformleg umræða um sameiginlega fjármögnun og kaup í apríl en nokkru síðar var ákveðið að Evrópusambandið myndi leiða slíka vinnu fyrir hönd aðildarríkjanna. Í júní tilkynnti Evrópusambandið bóluefnaáætlun sambandsins og fljótlega (Forseti hringir.) í kjölfarið var tekin ákvörðun um það að Ísland myndi verða samferða, ásamt Noregi, í gegnum Svíþjóð gagnvart ESB. Í nefndinni (Forseti hringir.) eða teyminu sem er að vinna að kaupum á bóluefnum fyrir hönd íslenska ríkisins eru sérfræðingar á vegum heilbrigðisráðuneytisins.