151. löggjafarþing — 48. fundur,  26. jan. 2021.

öflun og dreifing bóluefnis, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:58]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Eins og ég hef ítrekað farið yfir í þessari umræðu þá er það mín sannfæring að það hafi verið skynsamleg og rétt ákvörðun að fara í samflot með evrópskum ríkjum. Ég tel að það hafi tryggt okkur aðgengi að bóluefnum í krafti þeirrar samstöðu sem þar er fyrir hendi. Ef hv. þingmaður óskar eftir því að velferðarnefnd fái aðgengi að tilteknum gögnum verður um það fjallað í ráðuneytinu í samræmi við lög og reglur. Það verður gert og ég vil fullvissa hv. þingmann um að því verður svarað, gildir þó um það eins og um alla aðra lyfjasamninga að það er óheimilt að afhenda þá. Það á hv. þingmaður að vita og vera vel upplýstur um. En að sjálfsögðu verður erindum frá hv. velferðarnefnd svarað.