151. löggjafarþing — 48. fundur,  26. jan. 2021.

öflun og dreifing bóluefnis, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[16:07]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það er sannarlega rétt sem hv. þingmaður bendir á, að eftir því sem bólusetningum fjölgar og þeim fjölgar þar með sem hafa mótefni, hvort sem það er vegna þess að þeir hafa áður fengið Covid-19 eða hafa fengið bólusetningu, þá einfaldast öll samskipti milli þjóða og opnast fyrir möguleika á að fólk fari á milli landa o.s.frv. En sú staða sem við erum í — ég veit að við erum búin að segja allt of oft að hún sé fordæmalaus, en hún er það. Og núna er það sannarlega þannig að við erum að reyna að taka hvert skref af yfirvegun og upplýsingu og byggja á eins mikilli þekkingu og við getum. En þetta samspil tölfræðinnar annars vegar og svo bólusetninga og sóttvarnaráðstafana hins vegar er alveg örugglega mjög áhugavert. Ég hef séð það þegar í umfjöllun bæði frá tölfræðiteyminu og líka í vinnu hjá forsætisráðherra, að það eru tiltekin mörk sem verða þegar ákveðnum massa er náð og síðan aftur þegar hjarðónæmi er náð.