151. löggjafarþing — 48. fundur,  26. jan. 2021.

öflun og dreifing bóluefnis, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[16:08]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Herra forseti. Það er ekki auðvelt að reka lestina í ítarlegri umræðu sem ráðherra hefur tekið þátt í og bestu þakkir fyrir það. Hún hefur komið hér upp í ræðustól 24 sinnum og svarað spurningum greiðlega. Bóluefni er orð dagsins um þessar mundir umfram önnur og ekkert skrýtið. Í því er í hugum margra fólginn töframáttur, öruggt endurhvarf til eðlilegs lífs. Það er ekki nema rúmur mánuður síðan stjórnvöld og yfirvöld heilbrigðismála gáfu út að markmiðum um bólusetningar yrði náð á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þá væri búið að ná hjarðónæmi og lífið og vorið og sumarið myndi jafnvel brosa við okkur. Þær væntingar standast nú sennilega ekki.

Í síðustu viku kom fram í ræðu hv. þm. Páls Magnússonar, formanns allsherjar- og menntamálanefndar, hann var óvenju bjartsýnn þennan dag en kvartaði yfir því að það hefði dregist þetta með pantanir og afgreiðslu á bóluefni en bætti svo við að hann hefði rökstuddan grun að það stæði til bóta alveg á næstunni, eins og það væri einhverra tíðinda að vænta, eitthvað óvænt væri í því. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvað átti þingmaðurinn við? Getur ráðherra staðfest að fyrir liggi einhver vilyrði sem við almenningur höfum ekki vitneskju um? Eða var bara verið að slá ryki og gefa misvísandi upplýsingar enn einu sinni? Við vitum auðvitað að það er von á fleiri framleiðendum á markað á næstunni sem vonandi mun gera það að verkum að við fáum bóluefni hraðar en það er alltaf ákveðin áhætta og óvissa í ferli sem við erum að glíma við, einstakar aðstæður. Er ekki alveg klárt, herra forseti, að þau tímaplön og áætlanir ríkisstjórnarinnar í þessu sambandi eru farnar í vaskinn og veruleg seinkun verður á bólusetningum í landinu? Nú liggur fyrir að það verður ekki fyrr en í lok mars að bólusetningu allra (Forseti hringir.) yfir sjötugt verði lokið. Er ekki nær að fara að undirbúa landsmenn og tala um það hreinskilnislega (Forseti hringir.) að bólusetningar dragist verulega fram eftir árinu, fram til síðasta ársfjórðungs jafnvel? Hefur væntingastjórnun, herra forseti, á þessum viðkvæmu tímum ekki farið aðeins úr böndunum? (Forseti hringir.) Er það ekki ábyrgðarhluti af hálfu ríkisstjórnarinnar?