vextir og verðtrygging.
Frú forseti. Ég þakka spurninguna. Mér fannst hv. þingmaður svara þessu í upphafi. Við búum í allt öðru samfélagi og við allt aðrar aðstæður. Við getum sett þetta í samhengi. Þegar Ólafslögin voru sett fyrir fjórum áratugum var það vegna þess að verðbólgan knúði eignatilfærslu. Þremur áratugum síðar horfðum við upp á annars konar eignatilfærslu. Við vorum hér áðan, í fyrra andsvari, að ræða virðismat og má kannski fullyrða, það er kannski svolítið langt gengið, ég ætla samt að segja það, að það hafi verið eignatilfærsla knúin af verðtryggingunni, eignatilfærsla í hina áttina. Það getur ekki gengið. Við búum við allt aðrar kringumstæður í dag. Við búum við fjölbreyttara atvinnulíf og ég leyfi mér að fullyrða allt aðrar kringumstæður þegar við horfum til hagstjórnar, meiri þekkingar þegar kemur að peninga- og fjármálastefnu og ég tala nú ekki um skilning á því að þetta spili einhvern veginn saman. Ég segi: Hér eru kjöraðstæður í lágvaxtaumhverfi til að stíga skrefið alla leið og hanna lánafyrirkomulag sem jafnræði er í.
Ég ætla líka að skilja eftir til hugleiðingar hér í sambandi við lífeyrissjóðina að þá varð einhvers staðar til 3,5% ávöxtunarkrafa, það hefur í gegnum tíðina oft þvælst inn í umræðuna. Við viljum tryggja verðgildi krónunnar og ég hef fullan skilning á því að þegar ég tvítugur kaupi banana þá vil ég geta keypt banana þegar ég er sjötugur fyrir sömu krónurnar. En af hverju þarf ég að geta keypt banana og fá karamellupoka í kaupbæti? Hvað réttlætir það?