151. löggjafarþing — 48. fundur,  26. jan. 2021.

vextir og verðtrygging.

441. mál
[16:44]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Ég hjó eftir því að hann nefndi tvo þætti sem eru mjög mikilvægir í þessari umræðu, þ.e. jafnræði lántaka og lánveitanda. Svo kom hann inn á það sem kallað er ofmat vísitölu neysluverðs sem hefur verið rætt í þingsal og hv. þm. Ólafur Ísleifsson fór mjög vel yfir á síðasta þingi, og kann ég honum þakkir fyrir það. Það er málefni sem hefur verið allt of lítið rætt en skiptir hins vegar verulega miklu máli. Það hefur komið fram hér að verðtrygging var sett fyrir rúmum 40 árum, við allt aðrar aðstæður. 60% verðbólga ríkti í landinu þegar verðtrygging var sett á. Nú erum við að horfa upp á vernd verðbólgu, sem reyndar hefur hækkað, kom svolítið á óvart, er orðin 4,3%. Við sjáum að það ríkir allt annar stöðugleiki í efnahagslífinu í dag en fyrir rúmum 40 árum, sem er mjög jákvætt. Allar aðstæður segja okkur að í raun og veru eigi verðtryggingin ekki rétt á sér í þeim kringumstæðum sem við erum í núna; hún var sett við allt aðrar kringumstæður.

Þá langaði mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að þetta frumvarp gangi nógu langt. Nú eru aðstæðurnar mjög hagfelldar til þess að ganga enn lengra í að losa heimilin og fyrirtækin og fólkið í landinu undan fjötrum verðtryggingarinnar sem hefur valdið mörgum fjölskyldum og fyrirtækjum miklu óhagræði. Það er fyrir margra hluta sakir mjög ósanngjarnt hvernig það hefur sérstaklega bitnað á öðrum aðilanum, lántakanum.