vextir og verðtrygging.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er tvennt sem ég ætla að koma inn á. Fyrst ætla ég að svara spurningunni hreint: Nei, mér finnst þetta frumvarp ekki ganga nógu langt. Ég bind vonir við að efnahags- og viðskiptanefnd stígi skrefið alla leið og ég held að það séu alveg vonir til þess, miðað við það sem ég hef heyrt í umræðunni hingað til. Mér fannst umræðan hér á fimmtudaginn afar góð og þá er ég bara með samanburðinn við umræðu um verðtryggingu hingað til. Hún var sanngjörn, hún var málefnaleg og hún dró fram mjög marga þætti sem skipta máli í þessu. Hitt er þessi efnahagslegi stöðugleiki. Hvað eigum við við með efnahagslegum stöðugleika? Jú, við erum gjarnan að tala um verðstöðugleika. Við höfum til heilla búið við verðstöðugleika. Að vísu er verðbólgan, í einhverjum samanburði við verðbólgumarkmiðið, aðeins hærri núna en við höfum búið við verðstöðugleika. Það skiptir afar miklu máli. Ég tala nú ekki um ef okkur auðnast að stíga skrefið alla leið og ef meira bit verður í stýritækinu „vextir“ sem hluta af peningastefnu. Við eigum að gera þetta núna. Þó að umræðan hafi oft verið þvælin og hugtökin mörg og við þvælst hvert fyrir öðru hér á hinu háa Alþingi erum við kannski að ná utan um þessa umræðu og ég bind miklar vonir við að við stígum skref um leið. Ég tek undir það með hv. þingmanni, það eru kjöraðstæður til þess.