vextir og verðtrygging.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni og ég vil taka undir það með honum að í þeirri miklu efnahagslægð og niðursveiflu, atvinnuleysi og erfiðu aðstæðum sem þjóðarbúið hefur gengið í gegnum undanfarna mánuði er tækifærið einstakt til þess að stíga skrefið til fulls og afnema verðtrygginguna í eitt skipti fyrir öll. Ég er ekki viss um að þetta tækifæri komi aftur á næstunni, svo hagfellt og gott tækifæri til að ganga alla leið. Ég þakka enn og aftur hv. þingmanni fyrir að vera sammála okkur í Miðflokknum um þetta og leggja áherslu á þetta. Ég vona svo sannarlega að hann geti sem þingmaður í meiri hluta beitt sér fyrir því að þetta verði að veruleika.
Hv. þingmaður spurði líka um hvað skýri þessa hækkun verðbólgu. Ég verð því miður að segja að ég held að ríkisstjórnin sjálf eigi stóran hlut í því að verðbólga hefur hækkað. Um áramótin hækkuðu ýmsir liðir á vegum ríkisins, ýmsar gjaldskrárhækkanir urðu, verð á bensíni og olíu, kolefnisgjaldið. Allt hækkaði þetta og er liður í því að hækka vísitöluna og síðan hækkar verðbólgan. Ég nefndi það sérstaklega áðan að búið er að reikna það út að hækkunin á kolefnisgjaldinu ein og sér hækkaði vísitölu um 0,1%. Nú held ég að ríkisstjórnin, og komandi ríkisstjórnir, verði að átta sig á því að ekki er alltaf hægt að ganga fram fyrir skjöldu. Það er ekki hlutverk ríkisins eða ríkisstjórnarinnar að ganga fram fyrir skjöldu með hækkanir um hver einustu áramót. Það mun bara leiða til hærri verðbólgu og bitna á heimilum landsins og fjölskyldunum í landinu.
Þetta hefur verið rætt áður. Þótt vissulega hefði verið hægt að ganga lengra í hækkunum um áramót miðað við vísitöluhækkunina, þó að dregið hafi verið úr því, (Forseti hringir.) urðu engu að síður hækkanir á vegum ríkisstjórnarinnar sem við í Miðflokknum greiddum ekki atkvæði með.