151. löggjafarþing — 48. fundur,  26. jan. 2021.

vextir og verðtrygging.

441. mál
[17:38]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M):

Herra forseti. Það hefur verið ánægjulegt að taka þátt í þessari upplýstu og góðu umræðu hér í dag. Frumvarp hæstv. fjármálaráðherra snýst í raun og sanni um mjög afmarkaðan þátt sem er að hætta að bjóða upp á hinn eitraða kokteil, sem svo hefur verið kallaður, en það eru verðtryggð jafngreiðslulán til 40 ára. Þau eru þeirrar náttúru að þótt búið sé að borga og standa í fullum skilum í 20 ár hefur höfuðstóllinn ekki lækkað um svo mikið sem eina einustu krónu. Það saxast ekkert á hann. Það myndi náttúrlega ekki nokkur þjóð láta bjóða sér annað eins fyrirkomulag og hér hefur staðið allt of lengi og auðvitað eigum við að kasta því á haugana þar sem það á heima. En vegna þess að við erum að tala um þennan eitraða kokteil þá er rétt að hafa í huga að það eru fleiri þættir í þessu fyrirkomulagi sem eru baneitraðir og það er baneitrað í heild sinni.

Þess vegna ætla ég að leyfa mér að varpa því fram, herra forseti, að á meðan þetta fyrirkomulag er við lýði ætti að hafa sama fyrirkomulag og við sölu á t.d. sígarettum. Það má selja sígarettur en því aðeins að kaupendur séu varaðir við því að þeir séu að stofna lífi sínu og heilsu í hættu með því að neyta vörunnar. Meðan þetta er við lýði ætti fjármálastofnunum sem veita slík lán að vera skylt að tilkynna lántökum á verðtryggðum lánum m.a. eftirfarandi: Þú tekur á þig alla áhættu af verðlagsbreytingum á lánstímann. Þú ert í miklu veikari stöðu en lánveitandinn sem hefur yfirburðaþekkingu og þú ekki. Þú ert að gerast ábyrgur fyrir skuldbindingu sem einstaklingum er ekki boðið upp á í neinu landi sem við þekkjum og alls ekki í okkar heimshluta. Þú tekur á þig ábyrgð á sérhæfðu fyrirbæri, afleiðu sem heitir svo á fjármálaíslensku, sem er flókið fjármálafyrirbæri sem er ekki á færi nema sérfróðra kunnáttumanna. Þú veist ekki fyrir fram fjárhæð einnar einustu greiðslu á lánstímanum. — Þetta á allt saman að vera í skjali sem fylgir láninu og fjármálastofnunum á að vera skylt að upplýsa sína viðskiptamenn um þetta. — Þú átt á hættu að missa fótanna í fjárhagslegu tilliti af því að þú ert að taka þetta lán. Þú átt á hættu að vera hrakinn ásamt fjölskyldu þinni af heimili þínu eins og þúsundir íslenskra fjölskyldna geta borið vitni um eftir hrun. Þetta ætti í raun og sanni að fylgja hverju einasta láni, að fólk sé varað við því hverjar afleiðingarnar eru eins og reynslan sýnir með svo glöggum og dapurlegum hætti.

Herra forseti. Ég á mér þá ósk að við eigum eftir að eiga umræðu hér um nýtt fyrirkomulag þar sem verðtrygging heyrir sögunni til og þar sem við tökum mið af því sem nágrannar okkar gera, hvaða fyrirkomulag þeir hafa. Ég hef stundum leyft mér að vitna til danskra sérhæfðra íbúðalánastofnana sem heita á danskri tungu „realkreditinstitutter“ og standa á eldgömlum merg í Danmörku. Ekkert kerfi er fullkomið, fjarri því, en það fyrirkomulag sem við höfum búið við allt of lengi á bara engan rétt á sér.

Ég vil nota þetta tækifæri og þakka samþingmönnum mínum fyrir að taka þátt í þessari ákaflega upplýsandi og gagnlegu umræðu. Ég hlýt auðvitað að fagna þeirri viðhorfsbreytingu sem manni sýnist hafa orðið meðal a.m.k. ýmissa þingmanna Pírata. Ég fagna því sömuleiðis að hv. fulltrúi Framsóknarflokksins hérna talar, leyfi ég mér að segja, með öðrum hætti en hans flokksmenn hafa lengi talað. (Forseti hringir.) Þetta veit á gott og ég hlakka til umræðu um nýtt kerfi sem er fólki bjóðandi.

(Forseti (ÞorS): Forseti minnir á að þingmálið er íslenska.)