151. löggjafarþing — 48. fundur,  26. jan. 2021.

lífsýnasöfn og söfn heilbrigðisupplýsinga og vísindarannsóknir á heilbrigðissviði .

343. mál
[17:50]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það fer í raun og veru eftir upplýsta samþykkinu hvort veita má samþykki fyrir slíku, hvert inntak upplýsta samþykkisins er þegar það er veitt af viðkomandi sem tekur þátt í vísindarannsókninni. En vísindasiðanefnd hefur einmitt verið að skoða þann þátt sem hv. þingmaður er að spyrja um og mér finnst fullt tilefni til þess, eins og hv. þingmaður nefnir, að hv. velferðarnefnd skoði þennan þátt við meðferð málsins. Þessi spurning er ekki ný af nálinni. Hún hefur ítrekað komið upp á ýmsum stigum. Núna er reglugerðarheimild í lögum um vísindarannsóknir um að það eigi að vera hægt að setja reglugerð um það hvernig eigi að tilkynna um þvílíkt. Slík reglugerð er ekki til núna en reglugerðarheimildin liggur fyrir. Þetta frumvarp fjallar ekki nákvæmlega um það sem hv. þingmaður er að spyrja um en það gæti vel komið til álita, finnst mér, að hv. velferðarnefnd fjalli um þau álitamál sem þingmaðurinn er að vekja máls á hér.