lífsýnasöfn og söfn heilbrigðisupplýsinga og vísindarannsóknir á heilbrigðissviði .
Virðulegur forseti. Ég tek bara undir þau sjónarmið hjá hv. þingmanni að það sé brýnt að skoða þetta mál og leiða það til lykta. En þetta er mjög stór umræða af því hún varðar ákveðin grundvallaratriði, siðferðilegar spurningar, og hvílir á breiðari grunni en nákvæmlega það mál sem hér er til umfjöllunar. En mér finnst ekkert koma í veg fyrir að hv. velferðarnefnd skoði þetta sérstaklega við umfjöllun málsins af því að þetta kemur inn á það svið. Vísindasiðanefnd hefur sannarlega verið að skoða þetta og vel væri hægt að hugsa sér, í tilefni af umræðunni sem hv. þingmaður er að vekja máls á hér, að við myndum aftur taka upp þráðinn í ráðuneytinu varðandi þá reglugerðarheimild sem er fyrir hendi og liggur þar því að þessar spurningar verða náttúrlega sífellt meira aðkallandi eftir því sem vísindarannsóknum vindur fram og eftir því sem meiri upplýsingar og aukin þekking kemur í ljós við rannsóknastarf. Mér finnst full ástæða til að kanna það og ég mun vera í sambandi við hv. velferðarnefnd um það hvort við tökum þráðinn upp í ráðuneytinu eða hvort velferðarnefnd skoðar þetta sérstaklega eða hvort við einhendum okkur í það í samstarfi.