151. löggjafarþing — 48. fundur,  26. jan. 2021.

slysatryggingar almannatrygginga.

424. mál
[18:12]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýrt svar hvað þetta varðar. Það er ákaflega mikilvægt, sem fram kom af hálfu ráðherra, að reglugerðin fari í samráðsgáttina. Þá geta starfsstéttir eins og slökkviliðsmenn, sem ég nefndi hér sérstaklega, komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Þeir telja mikilvægt að þeir séu á þessum lista þegar um krabbamein er að ræða, en eins og ég sagði áðan benda margar rannsóknir til þess að þeir séu mjög útsettir fyrir ákveðnum tegundum krabbameins vegna eðlis starfsins. Við bruna myndast, eins og kunnugt er, gríðarlega mikið magn af krabbameinsvaldandi efnum. Það hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin staðfest og einnig Alþjóðakrabbameinsstofnunin sem er undirstofnun hennar. Þó að flestar þessar rannsóknir séu gerðar erlendis má vel heimfæra þær yfir á íslenska slökkviliðsmenn enda vinna þeir við sömu aðstæður og slökkviliðsmenn erlendis. Ég vildi bara árétta þetta en ég kem nánar inn á það í ræðu minni.

Ég fagna því að hér er réttarbót á ferðinni, tvímælalaust. Ég fagna frumvarpinu og vona að það fái vandaða og góða umfjöllun. Ekki síst er það einmitt samráðsgáttin sem hefur sannað gildi sitt ágætlega í ýmsum málum þegar kemur að lagasetningu. Ég fagna því sérstaklega að farið verði yfir þau mál þegar kemur að yfirliti um bótaskylda atvinnusjúkdóma.