slysatryggingar almannatrygginga.
Herra forseti. Ég fagna þessu frumvarpi. Hér er á ferðinni mikilvæg réttarbót og þá sérstaklega þegar kemur að atvinnusjúkdómum eins og ég nefndi áðan í andsvari við hæstv. heilbrigðisráðherra. Ég ætla í ræðu minni að rökstyðja nauðsyn þess að krabbamein, sem margir slökkviliðsmenn hafa því miður þurft að glíma við, verði í raun skilgreint sem atvinnusjúkdómur sem ætti að vera á því yfirliti yfir bótaskylda atvinnusjúkdóma sem gert verður í tengslum við þessa lagasmíð.
Tíðni krabbameins meðal slökkviliðsmanna hefur aukist mjög á undanförnum árum og ein af ástæðum þess er að í brunum í dag þá brenna allt önnur efni en áður þekktist. Fyrir 40 árum voru innanstokksmunir gerðir úr tré og ull og hálmi o.s.frv., en flest af því sem við eigum í dag á heimilum okkar er úr plastefnum og þegar þau brenna þá losnar mikið magn eldsneytis- og eiturgufa. Erlendar rannsóknir hafa m.a. sýnt að plastefni hafa fundist í þvagi slökkviliðsmanna. Slökkviliðsmenn á Íslandi hafa fundið þetta á eigin skinni í bókstaflegri merkingu. Flestir sem hætta að vinna sem slökkviliðsmenn í dag eru rúmlega 60 ára að aldri. Ótrúlega margir þeirra kljást við krabbamein og hjartasjúkdóma og næstum allir eiga við einhvers konar stoðkerfisvandamál að stríða. Langflestir þeirra hafa alla ævi verið í góðu líkamlegu formi.
Á Norðurlöndunum hafa slökkviliðsmenn rekið nokkur mál fyrir dómstólum til að ná fram bótum og viðurkenningu á atvinnusjúkdómi. Eðli málsins samkvæmt hafa slökkviliðsmenn oftast ekki hugmynd um hvaða efni eru að brenna í húsbruna í atvinnuhúsnæði eða í skipum, eða hvaða afleiðingar það mun hafa fyrir heilsu þeirra. Við þekkjum það að slökkviliðsmenn hafa það hlutverk að bjarga fólki og leggja sig í hættu við það. Starf slökkviliðsmannsins er eitt erfiðasta starf sem hægt er að sinna og því fylgir mikil hætta og það sem meira er, sú hætta gerir það að verkum að þeir eru útsettir fyrir alvarlegum atvinnusjúkdómum eins og ég nefndi hér í upphafi.
Það er vissulega hættulegt að fara inn í brennandi hús og því fylgja fleiri leyndar hættur sem fæstir vita um. Sem betur fer hefur enginn slökkviliðsmaður látist við skyldustörf á Íslandi. En það er hins vegar annar þáttur sem almenningur veit ekki um og er jafnvel enn hættulegri og það er hin svokallaða reykköfun. Það hefur orðið mikil vakning meðal slökkviliðsmanna um allan heim vegna þeirrar staðreyndar að fjöldi slökkviliðsmanna hefur látist af völdum krabbameins og þar eru íslenskir slökkviliðsmenn ekki undanskildir. Rannsóknir sýna að slökkviliðsmenn eru allt að tvisvar sinnum líklegri til að þróa með sér ákveðnar tegundir krabbameina og að krabbamein hjá slökkviliðsmönnum vaxi mun hraðar en gengur og gerist hjá öðrum. Strax eftir fimm ár í starfi hafa líkur á krabbameini meðal slökkviliðsmanna aukist verulega. Margar rannsóknir hafa verið gerðar hvað þetta varðar og er niðurstaðan ávallt sú sama.
Í Kaliforníu í Bandaríkjunum var sett löggjöf árið 1984 til að aðstoða þá slökkviliðsmenn sem greindust með krabbamein og í dag er svipuð löggjöf í gildi í öllum ríkjum Bandaríkjanna. Sú löggjöf felur það í sér að krabbamein er skilgreint sem atvinnusjúkdómur að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Árið 2002 tóku Kanadamenn upp svipaða löggjöf og síðan Ástralir árið 2012. Þó svo að þeir brunar sem kom upp í dag séu jafn alvarlegir og þeir voru fyrir 50–60 árum þá er staðreyndin sú að þeir innihalda miklu meira magn af efnum sem valda krabbameini. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og Alþjóðakrabbameinsstofnunin hafa gert rannsóknir sem sýna fram á að við bruna myndast í reyk gríðarlega mikið magn af krabbameinsvaldandi efni. Margar rannsóknir hafa verið gerðar á tíðni krabbameins meðal slökkviliðsmanna og benda þær allar til þess að tengsl séu á milli starfs slökkviliðsmanna og aukinnar tíðni krabbameins.
Þó svo að flestar rannsóknir séu gerðar erlendis má vel heimfæra þær á íslenska slökkviliðsmenn enda vinna þeir við sömu aðstæður og slökkviliðsmenn erlendis. Það er einmitt þessi mikli fjöldi af krabbameinsvaldandi efnum sem gerir starfið hættulegra en margan grunar. Það eru ekki miklir möguleikar fyrir slökkviliðsmenn að verjast upptöku á þessum efnum nema að mjög litlu leyti. Það er alveg ljóst að notkun á plastefnum, t.d. í húsgögnum og húsbúnaði, er ekki að minnka á næstu áratugum og bara í Kína, þar sem megnið af framleiðslu heimsins fer fram, verða til tugir nýrra plastgerða í hverjum mánuði og því erfitt að ná að halda utan um þau efni sem notuð eru til framleiðslu á plastvörum. Þrátt fyrir miklar forvarnir og betri útbúnað slökkviliðsmanna við slökkvistörf þá eiga þeir aldrei möguleika á að verja sig fullkomlega fyrir þeim krabbameinsvaldandi efnum sem finna má í reyknum sem myndast við bruna. En til að verjast hitanum þurfa þeir að vera í hlífðarfatnaði og þessi fatnaður þarf að geta andað til að losa líkamann við raka og það leiðir síðan af sér að krabbameinsvaldandi efni eiga greiða leið í gegnum hlífðarfatnaðinn en megnið af efnunum tekur líkaminn upp í gegnum húðina.
Það er mikilvægt að koma upp vinnuferli við árlegar læknisskoðanir slökkviliðsmanna sem eykur líkurnar á að krabbamein greinist snemma hjá þeim. Það er mikilvægt að fá ákveðin krabbamein meðal slökkviliðsmanna viðurkennd sem atvinnusjúkdóm að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Í Kanada, Bandaríkjunum og í Ástralíu eru 15 tegundir af krabbameini sem falla í flokkinn atvinnusjúkdómur hjá slökkviliðsmönnum; þeir fyrstu koma inn eftir u.þ.b. fimm ára starf og svo bætast fleiri við eftir því sem starfsaldur slökkviliðsmanna lengist.
Herra forseti. Það er eðlileg krafa af hálfu slökkviliðsmanna að litið verði til þeirra fjölmörgu rannsókna sem styðja málstað þeirra og unnið verði að því að tryggja að slökkviliðsmenn verði ekki eins útsettir fyrir krabbameinum og þeir eru. Slökkviliðsmenn á Íslandi eru frekar fámennur hópur og þó svo að tíðni krabbameins meðal slökkviliðsmanna sé með því hæsta sem þekkist meðal starfsstétta ætti kostnaðaraukningin ekki að vera mikil verði krabbamein skilgreint sem atvinnusjúkdómur slökkviliðsmanna. Í Bandaríkjunum, Kanada og Ástralíu eru yfir 99% allra slökkviliðsmanna tryggð fyrir starfstengdu krabbameini.
Ég vil segja það að lokum, herra forseti, að það er löngu tímabært að sjúkdómur á borð við krabbamein verið viðurkenndur sem atvinnusjúkdómur hjá slökkviliðsmönnum. Ég vona svo sannarlega að í þeirri vinnu sem fram undan er verði tekið tillit til þess og slökkviliðsmenn fái að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, og á það verði fallist að krabbamein verði sett á þann lista sem verður yfirlit um atvinnusjúkdóma eins og boðað er í frumvarpinu, að krabbamein meðal slökkviliðsmanna falli þar undir.