störf þingsins.
Herra forseti. Unnin hefur verið nýsköpunarstefna fyrir Ísland og mikil áhersla lögð á að ná til sem flestra sviða nýsköpunar í landinu. Við höfum fjölgað sjóðum sem taka utan um fjölbreytta nýsköpun og þróun framleiðsluafurða, samanber Matvælasjóð, og stóraukið fjárframlög í hefðbundna sjóði á sviði nýsköpunar. Nýverið var úthlutað styrkjum úr Rannsóknasjóði fyrir 2021 og aldrei hafa fleiri verkefni verið styrkt eða hærri upphæðum úthlutað, en sjóðurinn hefur til ráðstöfunar 3,7 milljarða á þessu ári. Það er full ástæða til að halda því til haga að á þessu kjörtímabili hafa opinber framlög til nýsköpunar, rannsókna og þekkingargreina aukist um meira en 70%. Það er mikil gróska í nýsköpun og ekki bara í hátæknigreinum heldur í matvælaframleiðslu, orkuskiptum, viðspyrnu í ferðaþjónustu og ýmiss konar iðnaði og líftækni, ég tala nú ekki um í umhverfismálum. Efnahagsáföll og heimsfaraldur sem við glímum við leiða til þess að það er oft meiri sköpun í gangi og drifkraftur sem stjórnvöld hafa lagt áherslu á að mæta með fjölda aðgerða og stórauknu fjármagni í rannsóknasjóði og skapandi greinar.
Nú stendur yfir vinna í atvinnuveganefnd við frumvarp um opinberan stuðning við nýsköpun. Þar er verið að endurskipuleggja stuðningskerfið við nýsköpun í landinu og áhersla lögð á að þjóna vel öllu landinu í samstarfi við atvinnulífið, háskólasamfélagið og sveitarfélögin og þá innviði sem til staðar eru. Það er mikilvægt að takist vel til og aðgengi allra að þjónustu- og nýsköpunarumhverfinu verði tryggt. Með virkjun hugvitsins og mannauði eru okkur allir vegir færir.