störf þingsins.
Forseti. Ég óskaði eftir að eiga orðastað við hv. þm. Brynjar Níelsson um bann við því að afneita helförinni. Eins og þingmenn og þjóð þekkja eflaust hefur slíkt mál verið lagt fram á þingi, bann og refsing við að segja heimskulega og jafnvel skaðlega hluti. Liggur ekki hundurinn þar grafinn að slík tjáning sé mögulega skaðleg? Það finnst sumum greinilega, en ég er hins vegar á þeim sokkunum að meðalið sé skaðlegra, að bann við slíkri tjáningu sé skaðlegra. Ég veit að hv. þm. Brynjar Níelsson hefur sagt skoðun sína á þessu máli, m.a. með orðunum: Nú voru það ekki bara þjóðernissósíalistar sem stunduðu þjóðarmorð í stríðinu og á árunum fyrir og eftir. Aðrir sósíalistar gáfu þeim ekkert eftir, til að mynda þeir sem stjórnuðu gömlu Sovétríkjunum.
Ýjar hv. þingmaður að því með kaldhæðnislegum tón, mjög góðum, að frumvarpið eigi kannski að taka einhverjum breytingum þannig að öllum verði refsað fyrir að fara með augljósa þvælu. Ég furða mig á þessu frumvarpi eins og hv. þm. Brynjar Níelsson en það vakti með mér enn meiri furðu í gær þegar forsætisnefnd afgreiddi breytingar á reglum um meðferð þingerinda þar sem bannað verður að birta umsagnir sem kunna að vera í andstöðu við lög, góða reglu og velsæmi, en þær reglur voru settar í kjölfar þess að umsögn barst allsherjar- og menntamálanefnd þar sem sagt var að helförin hefði ekki gerst.
Nú verð ég að viðurkenna að ég skil þetta ekki því að hv. þm. Brynjar Níelsson studdi breytingar á þessum reglum en var hins vegar andvígur frumvarpi sem var efnislega sambærilegt. Má sem sagt banna afneitun helfararinnar á þingi en ekki annars staðar? Er það kannski bara umfang refsingarinnar sem er vandamálið? Vill hv. þingmaður sem sagt bara beita ritskoðun til að koma í veg fyrir birtingu slíkra ummæla?