störf þingsins.
Forseti. Atvinnumálin eru eitt allra mikilvægasta mál líðandi stundar og koma til með að vera það á næstu árum. Í því samhengi hef ég margsinnis komið hingað upp í ræðustól til að tala um mikilvægi þess að Ísland verði samkeppnishæft í kvikmyndagerð á heimsvísu og mun halda áfram að tönnlast á því.
Hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur sagt, með leyfi forseta:
„Stór tækifæri felast í því að styðja enn frekar við kvikmyndagerð í landinu og hækka endurgreiðslur af framleiðslukostnaði í 35% líkt og gert er í löndum sem keppa við Ísland um verkefni.“
Forseti. Hún er sárara en tárum taki sú staðreynd að Ísland fer ítrekað á mis við stór erlend verkefni vegna þess að landið er ekki samkeppnishæft í greininni, jafnvel kvikmyndaverkefni þar sem Ísland sjálft er sögusviðið. Við lifum á krísutímum, atvinnuleysi eykst dag frá degi og við erum búin að missa fyrrum stærstu atvinnugrein þjóðarinnar. En hér er lausn, virðulegi forseti. Það er efnisþurrð í heiminum og rík eftirspurn eftir nýju kvikmyndaefni. Kvikmyndagerð er útflutningsgrein. Það er í raun magnað hvað kvikmyndagerð gæti gert mikið til að fylla í skarð ferðaþjónustunnar, fært gríðarlega fjármuni inn í hagkerfið og staðið eftir sem mikilvæg stoð fyrir íslenskt atvinnulíf til frambúðar.
Hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra á lof skilið fyrir nýju og flottu kvikmyndastefnuna sem hún lagði fram í fyrra, en nú þarf að fylgja henni eftir. Í áramótagrein sinni sagði samgönguráðherra að atvinnugreinar eins og kvikmyndagerð og skapandi greinar hefðu gríðarleg tækifæri til að stækka og byggja undir lífsgæði framtíðarinnar. Hann sagði einnig: „Framtíðin er björt ef okkur tekst að nýta þau tækifæri sem okkur bjóðast.“
Forseti. Ég staldra við orðalagið „ef okkur tekst“. Það þarf nefnilega ekkert að efast, það þarf bara að gera og gera það strax.