151. löggjafarþing — 49. fundur,  27. jan. 2021.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[16:03]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Jafnréttismálin eru styrkur okkar samfélags og ég held að það megi fullyrða að meiri hluti karlkynsstjórnenda hafi jafnréttissjónarmið í huga en vilji hins vegar velja þann sem hæfastur er hverju sinni. Til að ná settu markmiði eins og kynjakvótalögin kveða á um, að jafnrétti sé náð í stjórnum félaga hér á landi, vantar einungis að mér skilst um 13%. Þess vegna tel ég að það að skella hér inn einhverju sektarákvæði sé svolítið vanhugsað vegna þess að það gæti sett okkur af þessari beinu braut sem við höfum fetað jafnt og þétt í nokkurri sátt og samlyndi, held ég, síðan lögin voru sett fyrir rúmum tíu árum. Þess vegna tel ég þessar þvingunaraðgerðir ekki réttu leiðina. Það er sjálfsagt að styðja jafnrétti og það gerum við svo sannarlega í Miðflokknum. Við eigum að leiðrétta það sem þarf að leiðrétta í jafnréttislögum en þvingunaraðgerðir, eins og hér er mælt fyrir um, hugnast mér ekki eða sektarákvæðið sem lagt er upp með.

Mig langar að spyrja hv. þingmann álits á því hvort þetta ákvæði dragi ekki úr þeim mikilvæga meðbyr sem konur hafa nú þegar og að þetta ákvæði geti í raun og veru snúist upp í andhverfu sína.