151. löggjafarþing — 49. fundur,  27. jan. 2021.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[16:13]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég var smátíma að skilja spurningu hv. þingmanns en ég vona að ég hafi náð henni. Frumvarpið gengur út á að setja sektarákvæði í þau lög sem samþykkt voru á sínum tíma. Hv. þingmaður spyr hvers konar félagaform það sé. Það er minn skilningur að það hafi verið sett í lögunum á sínum tíma, og það sem við værum að bregðast við er að það væri bara sektarheimild ef fólk fylgdi ekki þeim lögum. Ef ég skil seinni spurninguna rétt, hvort það hefði komið til greina að leggja niður þau lög sem samþykkt voru fyrir tíu árum — skil ég ekki hv. þingmann rétt? — þá hvatti ég í ræðu minni þá sem efast um gildi þeirra laga til að leggja fram frumvarp um að afnema lögin sem slík. Ég myndi ekki styðja slíkt frumvarp.

Hv. þingmaður kom inn á það að þetta væri ekki mjög sjálfstæðislegt. Ja, ég veit ekki. Það eru margir Sjálfstæðismenn sem eru ósammála mér. Ég er eini Sjálfstæðismaðurinn, held ég, sem skrifa upp á þetta ágæta frumvarp en mér sýnist einhverjir samflokksmenn mínir hafa stutt það í nefnd. Skoðanir hafa verið skiptar um svona aðferðir innan Sjálfstæðisflokksins og örugglega víða í samfélaginu og ég hygg að hv. þingmaður þekki þá umræðu ágætlega. Hún stóð auðvitað hér á sínum tíma þegar þessi lög voru sett. Þá voru mjög skiptar skoðanir milli þingmanna Sjálfstæðisflokksins um gildi þeirra. Ég held ég hafi sagt það, þegar við vorum að fjalla um þetta mál í fyrsta skipti, að á mínum ferli, frá því að ég fór að skipta mér af pólitík, þá er ég örugglega búin að fara í alls konar hringi í því hvað sé besta og rétta leiðin til að ná fram jafnrétti. Ég veit ekki hvort ég hefði stutt þetta frumvarp á sínum tíma, þ.e. lög um hlutfall kynja í stjórnum, þegar það kom fram fyrir tíu árum. En ég held núna, tíu árum seinna, að það sé nauðsynlegt og ég held þar af leiðandi líka að það sé eðlilegt að hægt sé að framfylgja þeim lögum með sektarákvæðum.