151. löggjafarþing — 49. fundur,  27. jan. 2021.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[16:18]
Horfa

Frsm. minni hluta atvinnuvn. (Ólafur Ísleifsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Eins og aðrir vil ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar ágætu ræðu, þótt stutt væri. Eins og hv. þingmanni er kunnugt, þá liggur fyrir í málinu bréf eða umsögn frá mikilsmetnum prófessor, Stefáni Má Stefánssyni, þar sem hann víkur m.a. að félagafrelsi og eignarrétti. Ég þykist þess fullviss að hv. þingmaður, sem er einn af flutningsmönnum málsins, hafi kynnt sér vel og rækilega þessa umsögn prófessors Stefáns Más. Hann segir að félagafrelsi og eftir atvikum eignarréttur þeirra sé varinn af ákvæðum stjórnarskrárinnar gagnvart ýmsum ráðstöfunum af hálfu ríkisvaldsins. Hann segir í framhaldinu að fyrirliggjandi frumvarp gæti samrýmst félögum sem eru í eigu ríkis og sveitarfélaga en meiri vafi ríki hins vegar þegar um einkafyrirtæki sé að ræða. Þetta er orðrétt eftir honum haft. Hann segir síðan:

„Í öllu falli þyrfti þá lagaheimild af þessum toga að vera skýr og fyrirsjáanleg.“

Í framhaldi af þessu vil ég spyrja hv. þingmann, sem er nú staðsett í litrófinu þar sem lögð er áhersla á vernd eignarréttar, félagafrelsi og frjálst atvinnulíf, hvort hún hafi ekki áhyggjur af því að frumvarpið, þar sem hún er einn flutningsmanna, gangi gegn grundvallarstefnu hennar flokks, Sjálfstæðisflokksins, um vernd eignarréttar, félagafrelsi og þætti af slíku tagi.