samvinnufélög o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hann kemur inn á umsögn sem hefur borist í málinu og ég hvet hv. atvinnuveganefnd til að fara vel og vandlega yfir þær umsagnir sem borist hafa. En ég hef skilið þessa afstöðu sem svo að það sé í rauninni verið að velta fyrir sér lögunum sem samþykkt voru fyrir tíu árum síðan, og hvort þau ákvæði sem gera kröfu um ákveðið hlutfall beggja kynja í stjórn standist stjórnarskrá. Það að gera athugasemd við það núna að þeir sem uppfylla ekki lögin þurfi mögulega að borga sektir held ég að sé ákveðin hártogun við upphaflegu rökræðuna sem hægt hefði verið að fara í. Þannig að ég vísa aftur í það að ef fólk telur að lögin sem standa um jafnt hlutfall kynja í stjórnum fyrirtækja séu með einhverjum hætti röng, þá ætti fólk að leggja fram frumvarp um að fella þau brott. Ég hef ekki séð mikið fara fyrir þeirri umræðu frá því að þau lög voru samþykkt og frá því að sú rökræða átti sér stað á sínum tíma. Ég hef ekki séð marga kasta því fram eða hafa miklar áhyggjur af því að með þeim sé verið að ráðast að eignarrétti eða félagafrelsinu. En ég hef líka sagt það í andsvörum og ræðum út af einmitt þessu máli að ég hef alveg skilning á þessu sjónarmiði. Það er eins og svo oft að við þurfum að vega og meta ákveðin sjónarmið. Og sjónarmiðið um mikilvægi þess að samfélagið nýti krafta beggja kynja til fullnustu skiptir að mínu mati mjög miklu máli og það sé eðlilegt að setja einhver slík lög eins og eru í gildi til að ýta undir þá þróun vegna þess að við höfum ekki tíma til að feta þennan hæga gang sem fetaður hefur verið.
Hvað varðar (Forseti hringir.) skýrleika og fyrirsjáanleika í lagasetningunni þá vil ég bara hvetja hv. atvinnuveganefnd til að fara yfir þær ábendingar.