samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Frumvarp þetta gengur út á að lagðar verði á dagsektir ef ekki er farið að ákvæðum laga um kynjahlutföll í stjórnum félaga og sjóða. Ég hef reifað það hér og í andsvari áðan við hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, sem er einn af flutningsmönnum frumvarpsins, að það sé hugsanlegt og bara nokkuð augljóst að mínu mati að gengið sé of langt í þessu frumvarpi. Ég nefndi það líka áðan að Ísland mælist mjög hátt í könnunum í jafnréttismálum og er það af hinu góða.
Fyrstu almennu lögin um jafnrétti kvenna og karla hér á landi voru samþykkt á Alþingi árið 1976. Markmið laganna var að stuðla að jafnrétti kynjanna á öllum sviðum þjóðfélagsins. Síðan hefur þessum lögum verið breytt nokkrum sinnum og í dag eru í gildi lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla frá árinu 2008. Konur hér á landi hafa verið mjög virkar á vinnumarkaði síðustu áratugi og er atvinnuþátttaka kvenna hér á landi með því allra mesta sem þekkist í heiminum. Þetta kom m.a. fram hjá Hagstofunni fyrir tveimur árum. Innan OECD er meðalatvinnuþátttaka kvenna um 57%. Sé litið til kynjakvóta í löggjöf á Íslandi þá hafa nokkrar tilraunir verið gerðar á því sviði í gegnum tíðina. Ingibjörg H. Bjarnason, sú ágæta þingkona, lagði fram frumvarp árið 1927 þar sem lagt var til að konur fengju líka sæti í nefndum Alþingis, sem þær höfðu ekki aðgang að, sem vörðuðu almenning. Tillaga Ingibjargar var felld á þeim tíma. Konur hafa verið að styrkja stöðu sína á ýmsum sviðum og konur sitja frekar í stjórnum fyrirtækja en áður var og er það að sjálfsögðu ánægjulegt.
Skýringar á ójöfnum kynjahlutföllum má flokka eftir því hvort þær teljast til framboðs eða eftirspurnar, ef svo má að orði komast, þ.e. hvort skýringanna sé að leita hjá konunum sjálfum eða hjá fyrirtækjunum og í ráðningarumhverfinu. Ef kynjahallinn skýrist af framboðinu þá liggja ástæðurnar hjá konum. Þær sækja síður um stöður eða framgang. Þær setja hugsanlega fjölskylduna í forgang fremur en starfsferil. Ef skýringin liggur hins vegar í eftirspurninni þá eru ástæðurnar m.a. að karlar velja frekar karla, sérstaklega í stöður þar sem karlmenn eru í meiri hluta. Árið 2019 voru könnuð tengsl viðhorfa íslenskra stjórnenda til kynjakvóta og í hverju þeir töldu að skýringar á kynjahallanum lægju. Fyrir það fyrsta voru konur líklegri en karlar til að styðja kynjakvóta. Einnig voru þau sem álitu kynjahallann fremur vera vegna umhverfisþátta eða á eftirspurnarhliðinni líklegri til að styðja kynjakvóta. Konur voru auk þess líklegri en karlar til að álíta að kynjahallinn stafaði af ytri ástæðum á eftirspurnarhliðinni heldur en að ástæðunnar væri að leita á framboðshliðinni, hjá konum sjálfum.
Stöðunni á Íslandi svipar til Noregs sem er einnig hátt á lista Alþjóðaefnahagsráðsins fyrir kynjajafnrétti, en þar hefur heldur ekki gengið vel að jafna kynjahlutföllin í æðstu stöðum. Ójöfn staða kynjanna á vinnumarkaði hefur verið töluvert rannsökuð og orsakasamhengið er flókið í raun og veru og spannar áhrifaþætti allt frá staðalmyndum kynjanna og ójafnri fjölskylduábyrgð til kynjaðs námsvals og ábyrgðar stjórnenda.
Lög um kynjakvóta hafa haft mikil áhrif á kynjasamsetningu stjórna og hafa leitt til þess að mun fleiri konur sitja í stjórnum félaga en áður. Fyrsta landið á heimsvísu til að setja kynjakvóta fyrir stjórnir félaga var Noregur árið 2003. Markmiðið var að fjölga konum í stjórnum sem þóttu allt of fáar.
Í rannsókn sem gerð var við Háskóla Íslands frá árinu 2017 var viðhorf stjórnenda ráðningarfyrirtækja á Íslandi til kynjakvóta á framkvæmdastjórastöður skoðað. Það er athyglisvert að fara aðeins yfir það. Viðmælendur voru þeirrar skoðunar að kynjakvótar væru ekki rétta leiðin til að fjölga konum í stjórnunarstöðum innan fyrirtækja. Einn viðmælandi sagði að það yrði mjög auðvelt að finna leið fram hjá slíku kerfi. Þá yrði fleiri stöðum bætt inn í skipuritið í stað þess að skipta út fólki og þá yrðu slíkar stöður einfaldlega upp á punt, eins og sagt er, þ.e. það starfsfólk sem gegndi þeim hefði í rauninni ekkert að segja það sem þeir sem fyrir væru hefðu allt vald. Þá taldi sami viðmælandi að meiri líkur yrðu á að óhæfir einstaklingar gætu endað í framkvæmdastjórastöðum ef þessari leið yrði beitt. Þessar niðurstöður eru athyglisverðar.
Ljóst er að fámenn þjóð eins og Íslendingar hefur ekki efni á því að líta eingöngu í eina átt þegar kemur að stjórnunarstöðum í atvinnulífinu. Íslenskar konur hafa verið afar virkar í atvinnuþátttöku, eins og ég nefndi. Allt frá því um 1980 og frá 1990 hafa þær verið með yfir 70% atvinnuþátttöku. Samkvæmt upplýsingum frá OECD frá árinu 2019 er það mun hærra hlutfall en þekkist í löndunum í kringum okkur því að meðaltalið innan OECD er 57%, eins og komið hefur fram. Sé litið á árin eftir að kynjakvótalögin voru sett hefur hlutfallið hækkað.
Rök fyrir meira kynjajafnvægi í stjórnum fyrirtækja hafa m.a. verið viðskiptalegs eðlis og byggð á siðferðilegum og lýðræðislegum rökum. Þeir sem eru fylgjendur kynjakvóta halda því fram að kvótar í stjórnum fyrirtækja sé árangursrík leið til að minnka kynjamisrétti. Viðskiptatengd rök gera ráð fyrir því að meira kynjajafnvægi í stjórnum fyrirtækja bæti fyrirtækin með ýmsu móti. Það leiði af sér meiri árangur og arðsemi innan fyrirtækjanna. Rökin byggja á því að konur og karlar séu ólík, að konur komi með öðruvísi framlag í stjórnir en karlar eða að með því að hafa konur einnig í stjórnum fyrirtækja nýti fyrirtækin sér allan mannauð. Siðferðileg rök benda á að verið sé að mismuna konum þegar þeim er meinaður aðgangur að stjórnarsætum og einnig að kynjajafnvægi í stjórnum sporni aðeins gegn mismunun í garð einstakra kvenna með því að greiða aðgang þeirra að áhrifastöðum innan fyrirtækja til að ná fram réttlátari vinnubrögðum fyrir samfélagið. Þau rök benda til þess að fyrirtæki ættu að láta sig varða að auka hlutdeild kvenna í stjórnum fyrirtækja. Lýðræðisleg rök þeirra sem eru fylgjandi kynjajafnvægi í stjórnum fyrirtækja eru að það sé lýðræðislegt að konur séu einnig í stjórnum fyrirtækja. Lög um kynjakvóta sé spurning um kynjajafnrétti og þau eigi að auka þátttöku, áhrif og völd kvenna.
En svo eru það andstæðingar kynjakvóta og hvað segja þeir? Þeir benda á að kyn ætti ekki að skipta máli og að kvótar muni aðeins leiða til meiri fordóma í garð kvenna og lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja muni skaða tilraun þeirra til að ná fram jafnrétti. Einnig telja þeir að lögin geti komið í veg fyrir að hæfustu einstaklingarnir séu valdir og þau hafi neikvæð áhrif á samkeppni. Aðrir benda á að það skaði fjárhagsafkomu þeirra fyrirtækja sem ekki tekst að velja hæfustu einstaklingana í stjórn fyrirtækisins. Á það hefur verið bent að lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja séu táknræn í eðli sínu og ólíkleg til að búa til meira kynjajafnvægi í stjórnum. Þó svo að konur tækju sæti í stjórnum þá væri ekki verið að veita þeim aðgang að þeim. Það eru því skiptar skoðanir á kynjakvóta og ekki allir hlynntir honum þó svo að hann hafi meðbyr.
Árið 2015 voru áhrif kyns, aldurs og menntunar á væntingar til breytinga í kjölfar kynjakvótalaganna skoðaðar í BA-rannsókn við félagsvísindadeild Háskóla Íslands af Ingibjörgu Elvu Vilbergsdóttur. Niðurstöður sýna að þegar tengsl kyns og væntingar til breytinga á ýmsum þáttum innan félags eða sjóðs eru skoðuð kemur í ljós marktækur munur. Þættirnir sem voru skoðaðir voru stjórnarstörf, rekstrarafkoma félagsins eða sjóðsins, ímynd félagsins eða sjóðsins, kynjahlutfall æðstu stjórnenda annarra en stjórnarmanna og fyrirtækjamenning. Almennt telja konur frekar en karlar að lögin hafi jákvæð áhrif á félag eða sjóð. Nær engin kona telur að lögin muni hafa neikvæð áhrif en karlar telja frekar að áhrif þeirra verði neikvæð. Hlutfall þeirra er þó lágt, rétt að hafa það í huga. Hátt hlutfall karla telur að lögin hafi ekki nein áhrif á félag eða sjóð. Hátt hlutfall kvenna telur einnig yfir heildina litið að lögin muni ekki hafa áhrif á félagið. Þegar tengsl eru skoðuð milli aldurs annars vegar og hvort stjórnarmenn telji að kynjakvótalögin muni hafa áhrif á ýmsa þætti hjá félaginu eða sjóðnum og hins vegar menntunar og hvort stjórnarmenn telji að kynjakvótalögin muni hafa áhrif á ýmsa þætti hjá félaginu eða viðkomandi sjóði þá telur um og yfir helmingur stjórnarmanna að lögin muni ekki hafa áhrif á þættina sem spurt var um. Ekki reyndust vera marktæk tengsl á milli aldurs, menntunar og væntinga stjórnarmanna til áhrifa kynjakvótalaganna á ýmsa þætti hjá félaginu eða sjóðnum. Því er hægt að segja að kyn stjórnarmanna hafi áhrif á væntingar til breytinga í kjölfar kynjakvótalaganna en ekki er hægt að segja að aldur og menntun stjórnarmanna hafi áhrif á grundvelli þessara gagna. Niðurstöður leiða í ljós að viðhorf og væntingar kvenkyns stjórnarmanna til lagasetningar um kynjakvóta eru mun jákvæðari en hjá karlkyns stjórnarmönnum. Rúmlega 81% kvenkyns stjórnarmanna hafa frekar jákvæða eða jákvæða afstöðu til laganna í samanburði við 37% karla og er það í samræmi við niðurstöður rannsókna erlendis og aðrar rannsóknir sem gerðar hafa verið hér á landi.
Sú skoðun hefur m.a. komið fram að fjölgun kvenna í stjórnum geti hvatt til framgangs kvenna í stjórnendastöðum innan fyrirtækja, m.a. vegna þess að þær leggja sitt af mörkum til að gera starfsumhverfið vænlegra fyrir konur til að ná árangri. Lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja eru því mikilvæg.
Herra forseti. Jafnréttismál eru styrkur okkar samfélags og ég held að fullyrða megi að meiri hluti karlkyns stjórnenda hafi jafnréttissjónarmið að leiðarljósi og sé almennt fylgjandi þeim en vilji hins vegar velja þann sem er hæfastur hverju sinni. Til að ná settu markmiði eins og kynjakvótalögin kveða á um, að jafnrétti sé náð í stjórnum félaga hér á landi, vantar einungis 13% upp á. Þetta kom ég inn á í andsvari við hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur. Við erum ekki svo langt frá því að ná þessum árangri. Vissulega hefur það tekið tíma og það eru rúm tíu ár síðan lögin voru sett. En við höfum verið að feta beina braut til að ná þessu hlutfalli og miðað við ganginn í þessu þá hefði ég talið að það ætti að nást á næsta eina ári, einu og hálfu ári eða svo. Þá spyr maður sig: Hvers vegna er verið að setja inn eitthvert sektarákvæði núna akkúrat á síðustu metrunum þegar við erum að ná þessu markmiði í tiltölulega góðri sátt, markmiði laganna um jafnrétti í stjórnum fyrirtækja? Það á allt í einu að fara að rugga bátnum með einhverju sektarákvæði. Það að skella inn þessu sektarákvæði núna þegar við erum að ná markmiðinu, þegar vantar einungis 13% upp á að við náum því, er vanhugsað að mínum dómi, herra forseti, og getur sett okkur út af þeirri beinu braut sem við höfum verið að feta okkur áfram og erum að sjá fyrir endann á. Jú, við getum deilt um það hvort þetta hefði mátt ganga hraðar fyrir sig en þetta er niðurstaðan. Að þvinga menn í þessum efnum að viðlögðum sektarákvæðum tel ég ekki vera réttu leiðina.
Nú þegar málið verður skoðað frekar innan nefndarinnar vil ég hvetja menn til þess að hugsa þetta alla leið. Ég myndi kannski skilja það að menn myndu fara að íhuga einhverjar aðgerðir ef við værum mjög skammt á veg komin í þeirri vegferð að uppfylla þessa kvóta samkvæmt lögunum. Þá væri kannski skiljanlegt að menn ræddu að það þyrfti að gera eitthvað í málinu svo að við næðum þessum árangri. En svo er ekki. Ég er ekki alveg viss um að flutningsmenn hafi hreinlega áttað sig á því að við værum svona rétt við það að ná þessu markmiði, það er í kringum 13% sem vantar upp á að við náum þessu, eins og ég hef nefnt hér nokkrum sinnum. Ég er ekkert viss um að menn hafi allir áttað sig á því. Þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt að fara yfir þetta núna endanlega með það í huga að kannski var óþarfi að fara af stað með þetta mál vegna þess að það getur haft ákveðnar afleiðingar. Ég spurði t.d. hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur í andsvari hvort þetta gæti ekki hugsanlega leitt til fordóma gagnvart því að þvinga stjórnendur fyrirtækja með þessum hætti, leitt til fordóma í garð kvenna og til laganna í heild sinni. Það er alveg hugsanlegt að það gæti gerst. Hafa menn hugsað þetta alla leið hvað þá þætti varðar? En það er sjálfsagt að styðja jafnrétti og við gerum það svo sannarlega í Miðflokknum og við eigum að leiðrétta það sem þarf að leiðrétta í jafnréttislögunum.
Í lokin, herra forseti, tel ég að þvingunaraðgerðir, það sektarákvæði sem hér er lagt upp með, dragi úr mikilvægum meðbyr með konum í stjórnum félaga og geti í raun snúist upp í andhverfu sína. Það er vegferð sem við viljum ekki fara í.