151. löggjafarþing — 49. fundur,  27. jan. 2021.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[16:46]
Horfa

Frsm. minni hluta atvinnuvn. (Ólafur Ísleifsson) (M):

Herra forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um samvinnufélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um hlutafélög og lögum um sameignarfélög, viðurlög vegna hlutfalls kynja í stjórn. Í sínum innsta kjarna er það um að lagðar verði dagsektir á fyrirtæki meðan ekki er fullnægt viðmiðum kynjakvóta í stjórn félags.

Ég vil taka það fram þegar í upphafi, herra forseti, að um það markmið að tryggja jafnrétti karla og kvenna ríkir enginn ágreiningur af okkar hálfu sem ræðum þetta mál af hálfu Miðflokksins, enda er jafnrétti karla og kvenna meðal grunngilda íslensks samfélags. Það sem málið snýst um er að það eru ákveðnir vankantar á frumvarpinu og ég ætla að fjalla aðeins um nokkra þeirra.

Málið hefur verið til umfjöllunar á vettvangi hv. atvinnuveganefndar. Þar fórum við fulltrúar Miðflokksins, hv. þm. Sigurður Páll Jónsson og ég, fram á að aflað yrði lögfræðilegs álits um m.a. hugsanlegan árekstur við eignarréttarákvæði stjórnarskrár, grundvallarsjónarmið í félagarétti og í stjórnsýslurétti. Það var gert af hálfu nefndarinnar með því að leitað var til prófessors Stefáns Más Stefánssonar og hann ritaði bréf, sem ég hygg að hafi verið tölvubréf, og það er efnislega tekið upp í áliti minni hluta atvinnuveganefndar sem liggur hér frammi. Einhverra hluta vegna, herra forseti, er þetta bréf ekki að finna á meðal gagna málsins. Það er ekki talið upp með umsögnum en á því eru vafalaust góðar skýringar. Ég nefni þetta þannig að þeir sem vilja kynna sér sjónarmið prófessors Stefáns Más Stefánssonar, finni þau í áliti minni hlutans en þau er ekki annars staðar að finna, eftir því sem ég best veit, á vef Alþingis.

Það er skemmst frá því að segja að prófessor Stefán Már Stefánsson segir í sínu bréfi að félagafrelsi og eftir atvikum eignarréttur sé varinn af ákvæðum stjórnarskrárinnar gagnvart ýmsum ráðstöfunum af hálfu ríkisvaldsins, þar með talið löggjafans. Hann vitnar sömuleiðis til 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Hann rekur að meginreglan sé sú að félög ráði sjálf málum sínum og teljist jafnframt eigendur eigna sinna. Hann segir í framhaldinu að fyrirliggjandi frumvarp gæti samrýmst félögum í eigu ríkis og sveitarfélaga. En áfram segir, með leyfi forseta: „Meiri vafi ríkir hins vegar þegar um einkafyrirtæki er að ræða.“

Ég ítreka og undirstrika að lagaprófessorinn veltir því upp að þarna ríki vafi. Það er skylda okkar sem störfum á vettvangi Alþingis að taka upplýstar ákvarðanir og fram hjá þessu áliti prófessors Stefáns Más Stefánssonar verður ekki litið. Sú ástæða að hann hefur lýst því að vafi sé um það hvort þetta frumvarp rekist á stjórnarskrá, þegar um einkafyrirtæki er að ræða, ætti a.m.k. að leiða til þess að þetta mál yrði kannað nánar.

Það eru ýmis atriði sem nauðsynlegt er að gera athugasemdir við af öðrum toga í frumvarpinu. Fram hefur komið í nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar breytingartillaga þar sem segir að gera þurfi skýrt að heimild til álagningar dagsekta sé falin ríkisskattstjóra. Það er talað um að nauðsynlegt sé að gæta meðalhófs við álagningu dagsekta og ákvörðun fjárhæða og sagt að taka skuli tillit m.a. til umsvifa, reksturs og fjárhagslegs styrkleika viðkomandi aðila, eins og það er orðað. Þetta vekur auðvitað upp þá spurningu, herra forseti, hvort ekki þurfi að skýra betur við hvað er átt með orðum um umsvif reksturs og fjárhagslegan styrkleika félaga og hvernig ríkisskattstjóra beri að túlka þessi orð og hvernig fjárhæð sekta eigi að ráðast.

Síðan segir enn fremur í breytingartillögu meiri hlutans, með leyfi forseta: „Nú vill félag ekki una ákvörðun samkvæmt ákvæði þessu og getur það þá höfðað mál til ógildingar hennar fyrir dómstólum.“ Þetta þýðir að því er algerlega slegið föstu hér að hafi ríkisskattstjóri úrskurðað að fyrirtæki skuli greiða dagsektir þá á fyrirtækið þann kost einan að höfða mál með þeirri fyrirhöfn og tilkostnaði sem slíku málavafstri vitaskuld fylgir. Það er með öðrum orðum hvergi að finna hér og með öllu fyrir það girt að félag geti kært þá stjórnsýsluákvörðun sem liggur fyrir í málinu af hálfu ríkisskattstjóra til æðra stjórnsýslustigs. Það er auðvitað mjög alvarlegt mál, herra forseti, vegna þess að kveðið er á um það í frumvarpinu að þessar dagsektir skuli vera aðfararhæfar. Það segir ekkert um það að málshöfðunin, ef fyrirtækið myndi leita þess réttarúrræðis, fresti réttaráhrifum og dagsektir falli niður á meðan úr því fáist skorið fyrir dómstólum hvort ákvörðun ríkisskattstjóra fái staðist.

Hér er verið að fela opinberum stofnunum ríkisskattstjóra mjög umtalsverðar heimildir til að leggja dagsektir á fyrirtæki og það án þess að þau geti borið hönd fyrir höfuð sér nema með því að leita til dómstóla. Í frumvarpinu sem hér liggur fyrir og í áliti meiri hlutans er lagt upp úr meðalhófi. Það fæst ekki séð að framganga af þessu tagi eigi neitt skylt við meðalhóf.

Fjárhæð þessara dagsekta er tilgreind sem allt að 100.000 kr. á dag, þ.e. 3 milljónir á mánuði. Þá erum við komin upp í 36 milljónir á ári. Þetta eru engar smá fjárhæðir og það án þess að þolendur ákvörðunar af þessu tagi af hálfu ríkisskattstjóra eigi annan kost en að leita til dómstóla. Menn vita auðvitað að það getur tekið ærinn tíma og menn sjá fyrir sér hvernig þessar dagsektir hrannast upp, fyrst í milljónum og svo í milljónatugum.

Það verður að segja, herra forseti, að þetta frumvarp er náttúrlega ekki tilbúið til afgreiðslu. Það eru annmarkar á því, eins og ég hef nefnt hér nokkra. Það vantar allan sveigjanleika, það vantar allar undanþágur. Þá vantar að skilgreina hvað felst í viðmiðum um fjárhæðir úr rekstri þar sem talað er um umsvif og fjárhagslegan styrkleika, hvernig það á að hafa áhrif á álagningu dagsekta. Það hefur ekkert komið fram um það með neinum hætti hvaða stærðir það eru sem leggja á til grundvallar úr reikningum félaga. Það vantar meiri greiningu og athugun. Það vantar náttúrlega að fá álit fleiri aðila. Við höfum til að mynda ekki fengið umsögn frá Samtökum atvinnulífsins eða fulltrúar þeirra komið á fund hv. atvinnuveganefndar.

Ég hefði talið eðlilegast, herra forseti, í ljósi alls þessa og þá ekki síst í ljósi þess að við höfum hér álit frá lögfróðum manni um að þetta frumvarp geti rekist á eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar, að menn gæfu sér betri tíma og meira ráðrúm til að skoða þetta mál og ígrunda það áður en lengra verður haldið. Ég verð að viðurkenna að eftir þá umræðu sem hér fór fram 7. desember síðastliðinn, þar sem slík ákvörðun kynni kannski að hafa verið tekin, kom það mér eilítið á óvart þegar ég sá að þetta mál var komið að nýju á dagskrá á þingfundi.

Ég vil ljúka máli mínu, herra forseti, með því að hvetja til þess að hafa í huga þær skyldur sem hvíla á þingmönnum um að ákvarðanir séu upplýstar. Það vantar mikið á að svo sé í þessu og að vandað sé til verka og við erum ekki alveg komin á þann stað. Þess vegna hvet ég til þess að þetta mál verði lagt til hliðar.