samvinnufélög o.fl.
Hæstv. forseti. Já, þetta að tala frá hjartanu. Nú hafa andstæðingar mínir venjulega talað um að ég hefði ekkert hjarta og hefði ég það þá væri það úr steini. Ég er að tala um hin mikilvægu gildi hins frjálsa samfélags sem hafa komið þessu landi og mörgum öðrum löndum svona langt. Ég vil ekki fara þá leið að drepa það jafnt og þétt niður, eða smátt og smátt. Það er bara kjarninn í þessum málflutningi. Þetta eru allt einhver smámál sem menn horfa fram hjá, eitt og eitt — já, já, þetta er allt í lagi, það er gott að í öllum stjórnum séu jafn margir af hvoru kyni — og smátt og smátt gerist þetta.
Við verðum að halda í einhver prinsipp í frelsinu. Við megum ekki ganga svo langt að meiri hlutinn hverju sinni vaði áfram með þessum hætti til að ná markmiðum sínum. Það er lykilatriði. Varðandi mína eigin flokksmenn þá sé ég að þeir sem eru á álitinu eru með fyrirvara. Ég er ekki alveg klár á því hver fyrirvarinn er. En ég gef mér að fyrirvarinn sé til kominn vegna þess að í lögum er núna skylda að hafa jafnt af hvoru kyni og hér sé bara verið að bæta við viðurlögum sem jafnvel séu fyrir í hlutafélagalögum hvort eð er. Þá má segja að þetta frumvarp sé óþarft. En stóra atriðið sem við eigum að horfa til er að taka þessa vitleysu úr lögum. Það er kjarni málsins. Tökum þessa vitleysu úr lögum, það var mikið gert á árunum 2009–2013, (Forseti hringir.) hreinsum það út. En við höfum ekki haft rænu til þess hingað til.