151. löggjafarþing — 49. fundur,  27. jan. 2021.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[17:16]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar og er honum hjartanlega sammála um að þetta eru ólög í raun og veru. Frelsið hlýtur að felast í því að við fáum að gera það sem okkur hugnast og fyrirtæki sem eiga að ganga ættu að geta valið hæfasta fólkið til starfa í stjórnum. Auðvitað er gott að geta leitast við að hafa sem mest jafnrétti og ég hef þá trú að við séum að fara í þá átt. Ég er ekki með neina beina spurningu í þessu síðara andsvari heldur þakka bara fyrir í bili.