samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Það er orðinn hálfgerður plagsiður hér í þinginu að þakka mönnum alltaf fyrir ræður, sama hversu slæmar þær eru. En nú er fullt tilefni til að þakka ræðuna, sem var afskaplega vel upp byggð og góð og raunar skemmtileg líka, hjá hv. þm. Brynjari Níelssyni. Og hefði ég ekki haft tækifæri til að þakka fyrir þessa ræðu hefði ég þakkað fyrir ræðuna sem hann flutti fyrr í umræðunni sem að mínu mati var ein albesta ræða síðasta þings, þ.e. haustþingsins. Mjög djúp ræða, þegar vel er að gáð, en um leið skemmtileg. Ég hyggst einmitt nýta mér eitt og annað úr þeirri ræðu, vitna í hana þegar ég flyt ræðu á eftir og vonandi hefur hv. þingmaður tækifæri til að fylgjast með og grípa inn í, leiðrétta mig ef ég hef misskilið eitthvað. En vegna þess hversu djúp greining hv. þingmanns hefur verið í þessu máli, og þekkinguna hefur hann, hann nýtur þess nú að vera í senn sérfræðingur og þingmaður, en það er alltaf verið að tala um mikilvægi sérfræðinga, hér er sérfræðingur og þingmaður í einum manni sem er mikill kostur, þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að þetta frumvarp geti verið ein birtingarmynd af miklu stærra vandamáli sem við stöndum frammi fyrir í nútímastjórnmálum, þ.e. að frasar séu orðnir innihaldinu ríkari, það hafi orðið ákveðið rof milli umræðu og innihalds eða milli yfirlýstra markmiða og raunverulegra afleiðinga. Það virðist allt meira og minna nú orðið ganga út á heiti frumvarpa eða yfirlýst markmið eða frasana sem eru notaðir til að rökstyðja frumvarpið fremur en raunveruleg áhrif og raunveruleg innihald. Er þetta frumvarp að mati hv. þingmanns dæmi um slíkt?