samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breytingu á lögum um samvinnufélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um hlutafélög og lögum um sameignarfélög. Það hefur verið til umfjöllunar í hv. atvinnuveganefnd en er nú komið aftur fyrir þingið og 2. umr. heldur því áfram þar sem frá var horfið 7. desember sl. Ég hef sagt áður að um kostulegt frumvarp sé að ræða, herra forseti. Það er enginn ágreiningur um það að við viljum öll leitast við að tryggja jafnrétti á öllum sviðum milli kynjanna og manna á meðal yfir höfuð. Viðleitni til að bæta þar úr er og hefur sífellt verið í gangi á vettvangi löggjafarvaldsins.
Hér er um að ræða jafnrétti í stjórnum fyrirtækja. Um nokkurra ára skeið hefur verið í lögum ákvæði um að í stjórnum einkahlutafélaga, hlutafélaga, samvinnufélaga og sameignarfélaga með fleiri en þrjá í stjórn og fleiri en 50 starfsmenn, skuli hlutfall hvors kyns um sig ekki vera lægra en 40%. Þetta hefur verið í lögum, herra forseti, undanfarin ár. Hins vegar hafa engin viðurlög verið við því að brjóta þetta lagaboð. Sú vöntun hefur vissulega angrað suma. Nú á að bæta þar úr og lögfesta heimild til að leggja dagsektir á þau félög sem ekki fara eftir þessu lagaboði.
Þar tel ég, herra forseti, að skotið sé langt yfir markið. Í fyrsta lagi og aðallega vegna þess að þarna er verið að skipta sér af félögum og fyrirtækjum sem mörg hver eru í einkaeigu. Eigendur hafa lagt fé sitt og fyrirhöfn í að byggja upp sitt fyrirtæki og valið þá til stjórnar sem þeir treysta best til þess enda þeirra eigin fjármunir í húfi. Að ríkisvaldið sé að vaða með puttana í það hvernig þessar stjórnir eru skipaðar af eigendunum sjálfum og leggja viðurlög í þokkabót við því ef stjórnarmenn eru ekki rétt skipaðir með tilliti til kyns, er í hæsta máta varhugavert. Hvað er ríkið að skipta sér af þessu? Hvað vill það upp á dekk á þessu sviði?
Í þessu sambandi vil ég leyfa mér að lesa aðeins upp úr umsögn Kvenréttindafélags Íslands um frumvarpið um hlutfall kvenna í stjórnum, stöðuna eins og hún var 2018, en þar stendur, með leyfi forseta:
„Samkvæmt tölum frá Hagstofunni voru árið 2018 konur 28,8% stjórnarmanna í fyrirtækjum með 50–99 starfsmenn, 36,4% í stjórnum fyrirtækja með 100–249 starfsmenn og 39,4% í fyrirtækjum með 250 eða fleiri starfsmenn.“
Í öllum tilvikum er hlutfallið nálægt 29% til rúmlega 39%. Og við erum að tala hér um hlutfallið 40%. Hver er þörfin, herra forseti? Hver er þörfin á að hlaupa? Þetta er nánast rétt við þau mörk sem lögin kveða á um sem bendir til þess að þetta hlutfall sé smám saman að lagast án viðurlaga. Hver er þörfin?
Margt bendir einmitt til þess, herra forseti, að þetta hlutfall muni breytast hratt á allra næstu árum því 70% þeirra sem útskrifast með meistaragráðu úr háskóla eru konur nú um stundir. Er ekki líklegt að þær muni smám saman láta meira að sér kveða, ef þær eru sjö af hverjum tíu með æðstu gráðu í menntun umfram karla? Er ekki líklegt að þetta muni breytast? Þessar hlutfallstölur sem ég nefndi hér áðan eru tveggja ára gamlar, núna næstum þriggja ára, og því er líklegt að tölur séu nú þegar skárri í dag, konunum í vil.
Í hnotskurn erum við hér að tala um að löggjafinn sé að leitast við að þvinga fram eitthvert pólitískt stefnumál og ná einhverjum þjóðfélagslegum markmiðum og stefnu sem hann vill ná fram og aðhyllist, já, stefnu sem við getum öll verið sammála um, þ.e. að ná fram auknu jafnrétti milli karla og kvenna. Yfirleitt gengur þetta ágætlega en löggjafanum er stakkur sniðinn í þessum efnum þegar kemur að stjórnarskrá sem kveður á um að eignarrétturinn sé friðhelgur og einnig ákvæðum í stjórnarskrá um félagafrelsi, að menn megi stofna félög í sérhverjum löglegum tilgangi án þess að sækja um nokkurt leyfi til þess og félög má ekki leysa upp með ráðstöfun stjórnvalds. Félagafrelsið og friðhelgi eignarréttarins, þarna er ríkið að seilast langt ofan í vasa almennings sem stofnar félög, hefur lagt í það fé sitt og fyrirhöfn. Þá kemur ríkið og segir: Þið þurfið að hafa ákveðinn fjölda af konum eða körlum, sem eru kannski ekki fyrir hendi. Eigendurnir eru kannski með fimm góðar konur í stjórn, en það má ekki lengur. Það verður að finna einhverja karla úti í bæ, grípa þá einhvers staðar þó að þeir séu alls ekki nálægt fyrirtækinu eða í því eða nokkurs staðar sjáanlegir. Það þarf að finna þá og kjósa þá svo og smella þeim inn í næstu stjórn. Þeim er nauðugur sá kostur þrátt fyrir að konurnar hafi kannski bara staðið sig afskaplega vel hingað til og félagið sé vel rekið og þær hafi aflað sér þekkingar og reynslu. Nei, það þarf að troða þarna inn einhverjum tveimur lítt kunnum og óreyndum mönnum af því kyni sem hallar á í þeirri stjórn.
Hversu langt mega stjórnvöld ganga á rétt manna, þann rétt sem varinn er af þeim ákvæðum sem ég var að nefna? Auðvitað er þeim ákveðinn stakkur sniðinn, eins og ég sagði, en sá stakkur hefur verið teygður talsvert á undanförnum árum. Hér er einmitt komið skýrt dæmi um það að ríkisvaldið er að gangi ansi nærri þessum ákvæðum.
Eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar setur stjórnvöldum ákveðnar skorður um það hversu langt þau geta gengið í að skerða eignarrétt manna. Það er enginn vafi á því að ríkisvaldið getur sett reglur um það hversu margir stjórnarmenn í stjórnum fyrirtækja í eigu ríkisins eru konur eða karlar. Það er enginn vafi á því ef fyrirtækin sækja sínar tekjur í opinbera sjóði, enda er ríkið eigandi þar. Það er einnig hugsanlegt að ekki væri fundið verulega að því þó að ríkið myndi setja svipaðar reglur um almenningshlutafélög sem eru á markaði, enda starfa þau félög í skjóli markaðar sem varinn er af víðtækri löggjöf hins opinbera og sætir opinberu eftirliti, ítarlegu og gaumgæfilegu eftirliti hins opinbera, í mun meiri mæli en önnur félög í einkaeigu. En frumvarpið fjallar ekki um þessi félög. Það seilist inn á þau félög sem eru oft og tíðum í eigu hins almenna borgara.
Ég ætlaði að tala um dagsektir líka, herra forseti, en hef nú ekki tíma í það. Ég vil bara nefna það í lokin að mér finnst þær dagsektir, sem þarna eru lagðar til, allt of háar, allt upp í 100.000 kr. á dag ef þessir tveir karlmenn eru ekki kosnir í stjórn,(Forseti hringir.) fimm kvenna stjórn. Það er 100.000 kall á dag, rúmlega 3 milljónir á mánuði. Nei, herra forseti.