samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Við getum bara sammælst um að þetta sé sápukúla, ekki satt? Ég ætla aðeins að fá að eiga orðastað við hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson vegna þess að mér líkaði vel við ræðuna. Hún var ekki langt frá þeim tón sem ég sló hér fyrir jól þegar þessi umræða hófst. Eitt er að setja sér göfug markmið eins og sett eru annars vegar í þeim lögum sem krefja hlutafélög um að hafa sem jafnasta stöðu kynja í stjórnum, annað er síðan að vera með einhverjar refsingar, uppfylli menn ekki þau ákvæði. Þær refsingar eru í rauninni til staðar í gildandi lögum, allt að eins árs fangelsi. Hér er hins vegar verið að leggja til dagsektir og þær eiga m.a. að taka mið af einhverju óskilgreindu sem meira að segja flutningsmenn hafa ekki getað skýrt út fyrir mér, og varðar fjárhagslegan styrk fyrirtækis. En fjárhagslegur styrkur fyrirtækis er misjafn. Það eru ekki algild fræði eða mælieining hvað sé fjárhagslegur styrkur. Það fer eftir eðli fyrirtækjanna. Það fer eftir því í hvaða starfsemi þau eru. Það kallar t.d. á mjög aukinn fjárhagslegan styrk hjá fyrirtæki að vera í sjávarútvegi eða öðrum áhætturekstri á meðan fjárhagslegur styrkur í annarri tegund, eins og jafnvel einhvers konar verslunarfyrirtæki, þarf ekki að vera jafn mikill. Þannig að sektarákvæðin sem lögð eru til í þessu frumvarpi eiga að taka mið af einhverjum óljósum hugmyndum sem ekki er hægt að skilgreina og flutningsmenn hafa ekki treyst sér til að (Forseti hringir.) gefa skýr svör við því hvað er átt við með fjárhagslegum styrk.
Þess vegna spyr ég hv. þingmann: Er hann sammála mér í því að jafnvel þótt menn gætu tekið undir með flutningsmönnum þá sé málið ótækt, þó ekki sé nema út af þessu atriði einu?