151. löggjafarþing — 49. fundur,  27. jan. 2021.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[19:05]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hér fer fram mjög áhugaverð umræða um þetta mál. Ég get vel skilið að við fyrstu sýn hljómi allt vel sem hægt er að tala um. En þegar lengra er kafað ofan í málið er sýnin önnur. Hagstofan birti frétt í fyrra, í apríl nánar tiltekið, um það hvernig kynjaskipting í stjórnum fyrirtækja hefði verið árið 2019, fyrir fyrirtæki með 50 launþega og fleiri. Þar eru konur 34,7%. Það vantar aðeins upp á ef miðað er við 40:60-regluna. En það getur vel verið að flutningsmenn ákveði að miða eigi við 50:50-regluna, ég þekki það ekki.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort þetta mál sé raunverulega það sem þarf þegar okkur vantar bara brot úr einu prósenti til að ná 40%. Þetta eru fréttir síðan 2019. Það getur vel verið að staðan sé enn betri núna og væri gaman að heyra hvort hv. þingmaður veit eitthvað um það.