samvinnufélög o.fl.
Virðulegur forseti. Við erum að vinna í því að fá nýjustu tölur frá Skattinum í þessu máli og fáum þær þegar við fjöllum aftur um málið í nefndinni. Við erum að miða við félög þar sem ársverk eru 50 eða fleiri. Nýjustu tölur, þar er munur á. Á árinu 2018 var þetta í lagi hjá 28,8% þeirra fyrirtækja sem voru með 50–100 starfsmenn. En þegar farið var upp í 100–249 starfsmenn voru hlutirnir í lagi hjá 36,4% fyrirtækja. Þetta mjakast upp og ég held að það hafi skipt máli síðustu þrjú ár að þessi lög voru til umræðu. Málið var kallað til nefndar og gestir hafa komið á fund og sent umsagnir um málið síðustu tvö ár og aftur nú í vetur til okkar í atvinnuveganefnd. Sú umræða skiptir máli, að það sé ekki sjálfsagður hlutur að brjóta lög. Hvers eiga önnur fyrirtæki sem uppfylla lögin og fara eftir þeim að gjalda? Er það sanngjarnt gagnvart þeim að aðrir sem eru skussar og draga lappirnar komist upp með það og ekkert sé gert í því? Ég held að engum þyki það sanngjarnt, fyrir utan það hvað fyrirtækin eru heppin að fá öflugar konur í stjórn. Ég tel þetta bara vera svo mikinn bónus fyrir þessi fyrirtæki að virkja kraft kvenna í stjórnum. Það er nóg af konum sem eru hæfar til að sitja í þessum stjórnum.