samvinnufélög o.fl.
Hæstv. forseti. Ég er sammála því að það er nóg til af konum. Mig langar aðeins að spyrja hér í lokin um hugtökin karl og kona. Það var rætt í nefndinni og ég vitna hér beint nefndarálit:
„Regla um tiltekið lágmarkshlutfall karla og kvenna í nefndum geti eðli málsins samkvæmt tæpast tekið til einstaklinga með skráningu hlutlauss kyns enda ólíklegt að sá hópur verði ýkja stór í samanburði við fjölda kvenna og karla.“
Ég vil því spyrja hv. þingmann: Einu sinni var hópur kvenna ekki ýkja stór og samt héldum við konur í þá vegferð að ná fram rétti okkar á sem flestum sviðum samfélagsins. Af hverju er ekki tekið tillit til þessa hóps með skráningu hlutlauss kyns? Ég geri mér grein fyrir því að því var vísað til annarra, en af hverju beitti nefndin sér ekki fyrir því?