151. löggjafarþing — 49. fundur,  27. jan. 2021.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[19:12]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur fyrir ræðuna. Ég kallaði eftir því strax við upphaf umræðunnar í dag að hv. þingmaður, fyrsti flutningsmaður málsins, kæmi hér inn í umræðuna. Það er ágætt að það gerist núna en það hefði verið kostur að það hefði gerst fyrr. Ég ætla að byrja á öðru. Ég sá fyrir mér að spyrja hv. þingmann um það sem kom fram í fyrra andsvari þar sem hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir greindi frá því að umsögn Stefáns Más Stefánssonar prófessors yrði til umfjöllunar í nefndinni milli 2. og 3. umr. Umræðu var frestað þann 7. desember og haldinn fundur í atvinnuveganefnd þann 8. desember þar sem gestur var einn, að mér sýnist á fundargerðinni sem ég hef undir höndum, Stefán Már Stefánsson prófessor. Hvað var rætt og gert á þeim fundi? Hvernig eigum við almennir þingmenn, sem erum ekki nefndarmenn, að átta okkur á hvað fór fram þar? Og hvers vegna er málið komið aftur til 2. umr. úr því að ekki er búið að fjalla um umsögn Stefáns Más Stefánssonar prófessors, sem ég skildi sem svo að væri helsta ástæða þess að umræðunni var frestað hinn 7. desember? Þetta er allt alveg óskiljanlegt.