151. löggjafarþing — 49. fundur,  27. jan. 2021.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[19:18]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég vil nú bara að byrja á því að segja: Áfram konur. Síðasti ræðumaður, hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir, sagði: Áfram konur. Og ég segi það líka: Áfram konur. Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir konum og stundum reynt að setja mig inn í þeirra hugsanir. Það hefur kannski ekki gengið mjög vel þannig að mér gengur ekkert alltaf vel að skilja með hvaða gleraugum þær horfa á lífið. En ég ber ómælda virðingu fyrir konum, svo að það sé sagt. Ég verð að segja að mér finnst mjög einkennilegt að þetta mál sé komið aftur á dagskrá. Eins og kom fram hér í fyrri ræðum og í andsvörum rétt í þessu var þetta mál kallað inn til atvinnuveganefndar milli 2. og 3. umr. Síðan kom Stefán Már Stefánsson sem gestur á fundinn og ég stóð í þeirri meiningu að eitthvað yrði unnið í málinu eftir þann fund, það heyrðist ekkert meira, þannig að það tæki breytingum eða yrði jafnvel sett á ís eða svæft, eða hvernig sem við orðum það. En svo er þetta allt í einu komið á dagskrá í dag og verð ég að endurtaka það að ég furða mig á því.

Það kom líka fram, sem er náttúrlega staðreynd, að hér hafi nær eingöngu karlar tekið til máls. Þá bara datt mér í hug að ég geti ekkert gert að því þótt ég sé karl, ég bara fæddist í karlmannslíkama, hef verið karlmaður hingað til þannig að ég tala sem slíkur. Það hefur allt of mikið borið við, finnst mér, sérstaklega í umræðum hér á hinu háa Alþingi, þegar við erum að tala um jafnréttismál á einhverju sviði eins og t.d. þessu, að nærveru okkar er einhvern veginn tekið á mjög viðkvæman hátt, þegar við opnum munninn þessir karlar, hvítir karlmenn sem eru komnir yfir miðjan aldur eins og ég. Ég hugsa að eftir þessa umræðu í dag hafi mér aukist kjarkur til að standa með sjálfum mér og vera stoltur af því að vera hvítur karl á miðjum aldri eða eldri. Ég mun hér eftir sem hingað til virða konur og segja: Áfram konur. En ég mun örugglega standa betur með sjálfum mér og því sem ég hugsa. Ég hlustaði á ræðu hv. þm. Brynjars Níelssonar og kom í andsvar við hann, sem var eiginlega hálfgert meðsvar sem er víst bannað nú til dags. Hann blés mér aðeins líf í brjóst með það að tala um mál út frá eigin brjósti eins og segir í því sem við skrifum undir þegar við göngum til þings, þ.e. að þingmaður sé eingöngu bundinn sínum eigin hugsunum, ég man ekki hvernig það er orðað en það var fínt að rifja það upp fyrir mig.

En mig langar aðeins að ræða um það mál sem við fjöllum um núna. Það hefur komið fram að þetta eru lög síðan 2010, þau eru um tíu ára gömul. Flutningsmenn segja að það sé tími til kominn að setja sektarákvæði inn því að þetta gangi svo rólega, það gangi ekki nógu hratt að þessi lög nái fram að ganga. Hvað eru tíu ár? Þau eru nú bara óskaplega stuttur tími, finnst mér, í þessu samhengi. Mér finnst hafa gengið mjög vel að framfylgja þessum lögum. Ég er ekki þar með að segja að ég sé algerlega sammála því að þetta hafi verið sett í lög. Ég held að þetta hefði alveg getað unnist án þessara laga. En gott og vel, þetta var sett í lög og það hefur gengið alveg prýðilega. Ég vil líka láta það koma fram að lög eru mannanna verk, lög eru ekki eitthvað sem er meitlað í stein. Lög eru mannanna verk og það er hægt að breyta þeim eða afnema þau eða laga þau, svo að það sé nú bara sagt.

Tölur segja okkur að í stjórnum fyrirtækja með 50 launþega eða fleiri séu konur nærri 35%. Það er því ekki mikið sem vantar upp á að ná markmiðinu — erum við að tala um 40 eða 50%? Við skulum bara segja 50%, það er helmingurinn. Það vantar ekki mikið upp á og þess vegna finnst mér þetta frumvarp alger tímaskekkja og bara hálfgerður yfirgangur. Fyrirtæki hlýtur að vera rekið þannig að það gangi vel, annars færi það bara í gjaldþrot. Ef einhver fyrirtæki sem ekki hafa uppfyllt þetta hlutfall eiga að fara að greiða sekt þá gæti verið að þeim færi að ganga illa því að þá eru ekki þeir aðilar við stjórn sem annars hefði verið. Varla viljum við að fyrirtækjum gangi illa, og mér finnst það ekki kurteislega orðað að kalla slík fyrirtæki slugsa.

Svona lögþvinganir fara afskaplega illa í mig og í okkur sem erum ekki sammála þessu máli. Við vorum með eitt mál á dagskrá í gær sem er sameining sveitarfélaga þar sem lögþvinga á sveitarfélög til að sameinast innan viss tímaramma og þeim sem flytja það mál þykir það góðra gjalda vert. En tíminn hefur unnið með okkur í þeim málum sem við ræðum hér eins og sést best á tölum. 35% hlutfall kvenna í stjórn fyrirtækja með 50 launþega eða fleiri, það er staðreynd.

Hv. þm. Ólafur Ísleifsson fór yfir þetta mál í ræðu sinni en hann flutti ásamt þeim sem hér stendur minnihlutaálit atvinnuveganefndar fyrir jól og satt best að segja hélt ég að meiri hlutanum hefði snúist hugur eftir gestakomuna 7. desember þegar Stefán Már Stefánsson kom til fundar við nefndina.

Mig langar til að lesa minnihlutaálitið sem er ekkert mjög langt, með leyfi forseta:

„Um það markmið að tryggja jafnrétti karla og kvenna ríkir enginn ágreiningur enda er það meðal grunngilda íslensks samfélags. Minni hlutinn setur hins vegar spurningarmerki við það hvort sú aðferð sem mælt er fyrir um í þessu frumvarpi, þ.e. mjög íþyngjandi dagsektir sem geta numið 3 millj. kr. á mánuði eða 36 millj. kr. á ári, sé æskileg til að vinna að því markmiði og standist kröfur um meðalhóf.“ — Þetta er ansi kurteislega orðað, allt að 36 millj. kr. á ári á fyrirtæki sem uppfyllir ekki þetta skilyrði, ef þetta frumvarp yrði að lögum.

„Minni hlutinn lagði fram tvær spurningar um frumvarpið sem bornar voru undir Stefán Má Stefánsson, prófessor og sérfræðing í félagarétti. Í fyrsta lagi spurði minni hlutinn hversu langt ríkisvaldinu væri heimilt að ganga með hliðsjón af grundvallarsjónarmiðum í félagarétti og eftir atvikum eignarrétti, m.a. um frjálsa meðferð fólks á eignum sínum, með kröfu á hendur atvinnufyrirtækjum til að ná fram þjóðfélagslegum markmiðum með fjárhagslegum þvingunarúrræðum á borð við dagsektir, líkt og kveðið er á um í frumvarpinu. Í svari Stefáns kom eftirfarandi fram:

„Hafa ber í huga að félagafrelsi og eftir atvikum eignarréttur þeirra er varinn af ákvæðum stjórnarskrárinnar gagnvart ýmsum ráðstöfunum af hálfu ríkisvaldsins, þar með talið löggjafans. Af þessum sökum er meginreglan sú að félög ráða sjálf málum sínum og teljast jafnframt eigendur eigna sinna. Þennan rétt er þó unnt að skerða ef slíkar skerðingar hafa stoð í málefnalegum sjónarmiðum, þar á meðal sjónarmiðum um meðalhóf. Það væri t.d. málefnalegt sjónarmið að leitast við með setningu laga að jafna hlutföll milli karla og kvenna í stjórnum sumra félaga. Gæta verður þó meðalhófs. Það þýðir að leita verður leiða sem skerða sem minnst rétt félaga til að ráða sjálf málum sínum og eigum en geta engu að síður verið til þess fallnar að ná þeim markmiðum sem að er stefnt.“ — Þarna er algerlega verið að tala um að félögin treysti sér til að standa í þessu upp á rekstur fyrirtækisins.

„Sé um að ræða félög sem eru í eigu ríkis eða sveitarfélaga eru mun ríkari heimildir fyrir hendi til þess að setja lög af fyrrgreindu tagi. Fyrirliggjandi frumvarp gæti því samrýmst slíkum félögum.

Meiri vafi ríkir hins vegar þegar um einkafyrirtæki er að ræða. Í öllu falli þyrfti þá lagaheimild af þessum toga að vera skýr og fyrirsjáanleg. Það þýðir [að] þvingunarúrræðum verður vart beitt nema lagaheimild teljist nægjanlega skýr og að gættum hugsanlegum undantekningum sem þurfa sömuleiðis að vera skýrar. Eins [þurfa] að vera leidd rök að því (t.d. í lögskýringargögnum) að vægari úrræði væru ekki tæk til að ná markmiðinu um kynjahlutföll í stjórnum.“

Í öðru lagi spurði minni hlutinn hvaða kröfur gera bæri um málsmeðferð á vettvangi stjórnvalds sem falið væri vald til að beita íþyngjandi aðgerðum eins og mælt er fyrir um í frumvarpinu með tilliti til rannsóknarreglu, meðalhófs, andmælaréttar, upplýsingaskyldu stjórnvalda o.fl. og hvaða sjónarmið um sveigjanleika í ljósi ólíkra aðstæðna gætu átt við. Í svari Stefáns kom fram að það færi fyrst og fremst eftir heimildarlögunum. Væri um opna heimild að ræða væri öruggara að fara varlega og beita ekki heimild nema um tiltölulega augljósa vanrækslu væri að ræða. Í hlutafélögum og einkahlutafélögum gætu auðveldlega komið fyrir tilvik þar sem félag gæti ekki tryggt jafna stöðu kynja. Það ætti t.d. við þar sem hlutfallskosning væri viðhöfð. Við slíkar aðstæður væri tæpast ráðlegt að leggja á dagsektir. Einnig yrði að gæta að öllum stjórnsýslureglum og í því sambandi væri rétt að skoða stöðu þess stjórnvalds sem leggur á dagsektir og möguleika á að kæra slíkar ákvarðanir til æðra stjórnsýslustigs.

Minni hlutinn telur að framangreint gefi tilefni til að gera breytingar á frumvarpinu þannig að sveigjanleiki verði aukinn og til að tryggja að meira hófs verði gætt við íhlutun stjórnvalda um málefni atvinnufyrirtækja. Þá telur minni hlutinn nauðsynlegt að félagi sem dagsektir beinast að sé tryggður skýr réttur til að leita eftir endurskoðun slíkrar ákvörðunar á stjórnsýslustigi enda mikill munur á kostnaði og fyrirhöfn eftir því hvort ákvörðun er kærð til æðra stjórnvalds eða borin undir dóm.

Minni hlutinn telur af framangreindum sökum að málið sé ekki tilbúið til afgreiðslu. Nauðsynlegt sé að því verði vísað aftur til nefndarinnar til nánari umfjöllunar á milli 2. og 3. umr. þar sem tekin verði nánar fyrir þau atriði sem talin hafa verið til.“

Og nú er þetta mál aftur á leið til nefndarinnar og ég vona að tekið verði tillit til þess sem fram kemur í minnihlutaálitinu. Eins og ég sagði hér fyrr í ræðu minni hefði ég í hjarta mínu viljað að ekki þyrftu að vera lög um jafnrétti í stjórnum fyrirtækja. Það er ekki mikið frelsi í því að þurfa að setja slík lög og alls ekki að setja sektarákvæði ofan á þau af því að einhverjir eru orðnir svo óþolinmóðir þó að tölur sýni að ekki vanti mikið upp á.

Menn hafa velt vöngum yfir þessu í ræðum hér á undan og það var einmitt talað um það í ræðu áðan að það væru nánast eingöngu karlmenn sem hefðu talað. Mig minnir að hér fyrir jólin, þegar við vorum að ræða þessi mál, hafi hv. þm. Sigríður Á. Andersen tekið til máls og verið algjörlega á móti málinu. Hún er í stjórnarliðinu og hún er kona. Hún talaði einmitt um að það gætti óþolinmæði. Ég man ekki alveg hvað hún sagði en hún talaði um að þetta væri ótækt og vil ég taka undir það.

Það er aftur á móti spurning hvaða lyktir þetta mál fær en ég vona, þegar það fer til atvinnuveganefndar, að meiri hlutinn taki tillit til þess sem kemur fram í áliti okkar í minni hlutanum. Við sjáum síðan til hvernig málið fer. En eignarréttarákvæði gagnvart stjórnarskránni hefur líka komið til tals og eins spurning um lýðræðislega aðför. Mér finnst sú umræða ekki hafa farið á mikið flug og ekki mikill tími hafa farið í að skoða málið. Ef einhver vafi leikur á hvað varðar eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar finnst mér að það þurfi að endurskoða og gefa því góðan tíma. Varla viljum við að ríkið eigi von á því að höfðað verði mál sem kostar mikla peninga og mikið vesen ef frumvarpið verður að lögum.