staða Íslands á lista yfir spillingu.
Herra forseti. Þegar kemur að aðgerðum stjórnvalda gegn spillingu þá vil ég hafa glasið fullt og dæmin sem ég nefndi eru nefnilega alls ekki léttvæg. Ég nefndi bankahrun. Ég nefndi óeðlilegt fjármálavafstur stjórnmálamanna í tengslum við Panama-skjölin og ég nefndi Samherjaskjölin. Mig langar þá að nefna í samhengi við þessa skýrslu að nýlega birtist skoðanakönnun MMR sem sýnir að einungis 23% treysta fjármálaráðherranum til að halda utan um sölu á Íslandsbanka. Þetta er forvitnileg niðurstaða og það vakna óneitanlega spurningar. Nú spyr ég: Telur hæstv. ráðherra að hér séu landsmenn að lýsa tortryggni í garð fjármálaráðherra Íslands yfirleitt, og þá stjórnvalda, að um sé að ræða kerfisvanda, eða telur hæstv. fjármálaráðherra, eins og í hinum málunum, að um sé að ræða afmarkaðan vanda og tortryggni í garð fjármálaráðherrans Bjarna Benediktssonar og tengsl hans við eitt af þessum málum í skýrslunni?