íslenska krónan og verðbólga.
Virðulegi forseti. Það má skilja á máli hv. þingmanns að það sé eftirsóknarvert að vera í hagkerfi þar sem verðbólgan er 0,5%. Ég lít á það sem sjúkleikamerki að það sé eftirsóknarvert að búa á gjaldmiðilssvæði þar sem Seðlabankinn, í þessu tilviki Evrópski seðlabankinn, hefur lofað að kaupa 70% af öllum ríkisútgefnum pappírum á næstunni — 70%. Ég lít á það sem mikið sjúkleikamerki að það séu ekki væntingar um vöxt. En það verður hverjum að sýnast sitt um þetta. Það er hins vegar ágætisheilbrigðismerki á Íslandi að hér eru væntingar um ágætan hagvöxt á þessu ári, ólíkt því sem gildir víða í Evrópu.
Ég ætla ekki að kvarta undan því að menn spyrji spurninga sem varða verðbólguna. Ég held hins vegar að hv. þingmaður hafi komist að rangri niðurstöðu um að það sé gjaldmiðlinum að kenna.
Spyrjum okkur að því hvað er undirliggjandi. Þetta eru allt mælanlegar stærðir. Hvers vegna skyldi vöruverð vera að hækka eilítið á Íslandi? Gæti verið að það hafi eitthvað með launaþróun í landinu að gera? Gæti verið að það kunni að smitast út í verðbólgu þegar Ísland, eitt þeirra ríkja sem hv. þingmaður tiltekur í samanburði sínum, hækkar laun verulega í kreppunni? Kann að vera að það smitist smám saman út í álagningu í þjónustu og í vörukaupum og annars staðar? Ég held að það sé nú bara þannig. Mestu skiptir samt sem áður í augnablikinu að verðbólguvæntingar á markaði eru um að þetta sé lítið skot sem gangi til baka. Horft fram á við gerir allur markaðurinn á Íslandi ráð fyrir því að Seðlabankanum gangi vel að ná tökum á verðbólgustiginu og að verðbólga fari lækkandi á komandi misserum.