íslenska krónan og verðbólga.
Virðulegi forseti. Þegar við lítum til baka til undanfarinna ára, og skoðum reyndar síðasta ár líka, þá er íslenska krónan að gera nákvæmlega það sem við viljum að gjaldmiðillinn okkar geri í efnahagssveiflu. Hún gefur eftir til að skapa svigrúm og bæta samkeppnishæfnina og styrkist eins og hún gerði hér á árum þegar ferðaþjónustan var í hámarki. Það hafði tilætluð áhrif og hjálpaði m.a. til við að byggja upp mikinn gjaldeyrisforða á Íslandi. Staðan að baki íslensku krónunni hefur aldrei í lýðveldissögunni verið sterkari en einmitt nú.
Það sem ég var að vísa til varðandi verðbólguna er að hv. þingmaður virðist telja eftirsóknarvert að hafa enga verðbólgu. Það er mikill misskilningur. Við erum með sérstakt verðbólgumarkmið um 2,5%. Það væri heilbrigðismerki að við næðum að vera í kringum verðbólgumarkmiðið. Það er skrifað í lög og það er algjört grundvallaratriði að menn skilji að það er betra að vera við 2,5% en að vera í núlli. Það eru á alla kanta betri aðstæður. (Forseti hringir.) Launaþróun hlýtur að hafa mjög mikil áhrif og ég er þeirrar skoðunar að við höfum að öllum líkindum tekið meira út í launaþróun á Íslandi en innstæða er fyrir í hagkerfinu.