151. löggjafarþing — 50. fundur,  28. jan. 2021.

algild hönnun ferðamannastaða.

[10:45]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Nú er nýútkomin skýrsla ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um stöðu og þróun Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða, gefin út núna í janúar. Hvað er athugavert við þessa skýrslu, þetta skrautrit? Jú, í skýrslunni eru fatlaðir einstaklingar ekki nefndir einu orði, fólk í hjólastólum er ekki nefnt einu orði eða aðgengi þess. Og ekki er algild hönnun heldur nefnd einu orði. Hvers vegna skyldi það vera furðulegt? Jú, vegna þess að í vor, þann 5. júní síðastliðinn, var samþykkt á Alþingi frumvarp um breytingu á lögum um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Í umfjöllun í nefndaráliti segir, með leyfi forseta:

„Almennt lýstu umsagnaraðilar ánægju með efni frumvarpsins. Í umsögn Sjálfsbjargar kom þó fram það sjónarmið að ganga þyrfti úr skugga um að aðgengi væri tryggt á þeim stöðum sem fengju úthlutað úr Framkvæmdasjóði ferðamanna. Við mat á umsóknum og úthlutunum úr sjóðnum ætti því að líta til algildrar hönnunar. Fyrir því lægju ýmis rök og var m.a. vísað til skuldbindinga íslenska ríkisins á grundvelli samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og jafnræðisraka. Að mati meiri hlutans er rétt að taka tillit til sjónarmiða um algilda hönnun þegar teknar eru ákvarðanir um úthlutanir úr sjóðnum og að lögð sé áhersla á aðgengi fyrir alla eftir fremsta megni. Jafnframt áréttar meiri hlutinn það sem fram kemur í samráðskafla frumvarpsins um að ákvæði laga um mannvirki, nr. 160/2010, um algilda hönnun, gilda um mannvirkið falli það undir gildissvið laganna.“

Það eru gróf mannréttindabrot framin daglega á Íslandi þegar hreyfihömluðum er meinaður greiður og sjálfsagður aðgangur að húsnæði, ferðamannastöðum og opinberum byggingum. En er það eðlilegt að hæstv. ráðherra ferðamála virði ekki sín eigin lög og geti ekki sett í sitt eigið skrautrit eitt einasta orð um það sem hún á að vernda?