algild hönnun ferðamannastaða.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Þessi samantekt um uppbyggingu með fjármunum úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða er um verkefni sem hafa fengið úthlutað úr sjóðnum frá árinu 2012. Áhersla á aðgengi fyrir fólk með fötlun hefur aukist á þessum árum. Þegar verið er að gefa verkefnum stig og fara yfir umsóknir er það talið til tekna þegar verkefni uppfylla slík lágmarksskilyrði. Ég hef alloft átt orðaskipti við hv. þingmann hér í þingsal, sem ég kann að meta. Ég kann að meta það hversu mikla áherslu hann leggur á þann sjálfsagða þátt að þegar verkefni fá úthlutað úr opinberum sjóðum hafi þau sem um þau verkefni sjá þau gleraugu á sér að fólk með fötlun geti upplifað þá staði. Við hv. þingmaður höfum átt samtal um það að ekki er verið að gera kröfu um að fólk með fötlun geti gert nákvæmlega allt það sama og allir aðrir á slíkum stöðum. Í Bandaríkjunum, innan þjóðgarða t.d., eru alltaf lágmarkskröfur fyrir fólk með fötlun þannig að það geti notið staðarins, notið útsýnisins, þó að það sé eðli máls samkvæmt ekki alltaf að fara í allar göngur með leiðsögn upp á fjöll.
Mér finnst þessi krafa sjálfsögð. Ég hef lagt áherslu á þetta í þeim breytingum sem við höfum lagt fram. Þessi samantekt er bara þessi stóra mynd og uppbygging, með tilliti til þeirra fjármuna sem hafa farið í verkefnin. En þetta er fín ábending og það hefði kostað lítið að reifa þær breytingar og þá þróun sem átt hefur sér stað undanfarin ár í þessari skýrslu.