151. löggjafarþing — 50. fundur,  28. jan. 2021.

algild hönnun ferðamannastaða.

[10:50]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið, en því miður, það þarf ekki að setja inn í skýrsluna, það þarf að framkvæma. Sennilega eru 95% af opinberum stofnunum á Íslandi með lokað aðgengi fyrir fólk í hjólastólum. Er ekki bara ástæðan sú að sveltistefna ríkisins gagnvart öryrkjum veldur því að ríkisstjórnin telur að það sé búið að sjá til þess að öryrkjar hafi ekki efni á því að ferðast og þess vegna sé ástæðulaust að hafa aðgengi að ferðamannastöðum fyrir þá sem hafa ekki efni á að fara þangað hvort sem er? Þess vegna kemur ekki eitt orð um aðgengi fatlaðra að ferðamannastöðum, ekki orð um algilda hönnun. Ofbeldi gegn fötluðum verður að stöðva strax og það verður ekki gert með því að fara ekki að lögum og leggja fram frumvarp um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hvar er frumvarpið? Það var samþykkt hér á þingi að leggja þetta frumvarp fram. Hvað er ríkisstjórnin að gera? Hvers vegna í ósköpunum er þetta ekki gert? Af hverju er stanslaust haldið áfram ofbeldi gagnvart fötluðu fólki? Er það ásættanlegt hjá þessari ríkisstjórn?