algild hönnun ferðamannastaða.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Hér er spurning um framkvæmdasjóðinn og með hvaða hætti það er rætt um aðgengi fyrir fatlað fólk á þeim áfangastöðum sem hafa fengið fjármuni úr sjóðnum. Í umsóknarferli er sérstaklega bent á þá samantekt sem hefur verið unnin hvað varðar aðgengi fyrir alla og það er lögð áhersla á það. Við höfum lagt okkur fram um að auka skilning á því. Þetta er áhersla en það má vissulega, og ég er algjörlega á þeirri skoðun, halda betur á lofti þeirri áherslu og þeirri sjálfsögðu kröfu að þegar verið er að byggja upp áfangastaði fyrir alls konar ferðamenn, hvort sem þeir eru íslenskir eða útlenskir eða fólk með fötlun eða ekki, sé litið til þess að það sé aðgengi fyrir alla. Það er líka sjálfsagt að því sé fylgt eftir sérstaklega hvaða árangri við erum að ná hvað varðar þessar áherslur.