151. löggjafarþing — 50. fundur,  28. jan. 2021.

framlög úr ofanflóðasjóði.

[10:53]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Við höfum verið minnt á það tvisvar á u.þ.b. einu ári hversu mikilvægt það er að halda uppi öflugum ofanflóðavörnum á Íslandi, bæði vegna snjóflóðsins á Flateyri fyrir réttu ári síðan og einnig vegna atburða sem urðu nýlega á Seyðisfirði. Á hverju ári eru innheimt ofanflóðagjöld af fasteignaeigendum á Íslandi upp á rúma 2 milljarða. Ofanflóðasjóður hafði um 700 milljónir á ári í vaxtatekjur að auki, þannig að u.þ.b. 3 milljarðar á ári innheimtust í þennan sjóð sem stendur straum af ofanflóðavörnum. Í viðtali fyrir ári síðan, í kjölfar atburðanna á Flateyri, sagði stjórnarmaður í sjóðnum að í honum væru þá í kringum 23 milljarðar kr., en hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vildi meina að þar væru 15 milljarðar. Þarna munar 8 milljörðum, en það er nú aukaatriði í málinu.

Fyrir nokkrum árum gerði fjármálaráðuneytið ofanflóðasjóð upptækan og henti honum inn í ríkissjóð. Fram kom í fréttum um daginn að ríkisstjórnin ætlaði að veita 1.600 milljónir í ofanflóðavarnir og auðvitað veitir ríkisstjórnin ekki neinar fjárhæðir í það þarna vegna þess að þeir peningar eru til, þeir eru markaðir, þeir eru innheimtir á hverju ári.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé vilji hans að beita enn meira afli vegna þeirra peninga og þeirra fjármuna sem tilheyrðu þessum sjóði til að efla ofanflóðavarnir, ekki bara á þessum tveimur stöðum sem ég nefndi, fleiri staðir liggja undir á Austfjörðum og víðar, hvort hæstv. ráðherra hugsi sér að veitt verði rösklega inn í þennan málaflokk til þess að við getum komið þessum málum í sæmilegt horf.