151. löggjafarþing — 50. fundur,  28. jan. 2021.

framlög úr ofanflóðasjóði.

[10:55]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara í langt mál um þessa sögu með ofanflóðasjóðinn. En í örstuttu máli þá er hann í raun eins konar bókhaldsstærð í ríkisfjármálunum. Það sem hefur reynt á í sögunni er það hversu miklar fjárheimildir eru veittar í fjárlögum hvers árs til þess að standa straum af þessum framkvæmdum. Eftir því sem fjárheimildir eru hærri, þeim mun meiri eru áhrifin á niðurstöðu fjárlaga hvers árs. Það sem mér finnst ekki hafa verið í lagi, og ég vona að ég hafi verið nægilega skýr með það, er að í raun var aldrei í sögunni frá 1997 allt það fjármagn veitt til framkvæmda á hverju ári sem innheimt var með þessu sérstaka gjaldi. Það gengur ekki upp og þar með falla rökin fyrir sjálfu gjaldinu, ef menn ætluðu aldrei að nýta það í þeim yfirlýsta tilgangi sem hefur verið gefinn upp. Eftir þá atburði sem hv. þingmaður vísaði til var farið ofan í saumana á þessari stöðu og við opinberuðum upplýsingar aftur í tímann um þetta, en stigum síðan stærsta skrefið sem stigið hefur verið á seinni árum í nýrri fjármálaáætlun þar sem við erum að stórauka framkvæmdastigið. Við tókum þetta með í það sem við höfum kallað innviðauppbyggingarátak eða fjárfestingarátak stjórnvalda og erum sem sagt núna að vinna að tíu ára áætlun þar sem öllum þessum helstu stóru verkefnum verður sinnt. Á því tímabili á ekki að vera neinn vafi á því að það sem lagt er á fasteignaeigendur í landinu mun skila sér í þessa uppbyggingu. Ég vil því meina að við höfum svarað myndarlega ákalli um að gera bragarbót hér.