hreinsunarstarf á Seyðisfirði.
Forseti. Á kjördæmafundi Pírata í Norðausturkjördæmi komu fram áhyggjur af ástandinu á Seyðisfirði en fyrir sex vikum skall aurskriða á bænum og svo önnur. Smám saman hefur fólk komist heim aftur en ekki í öryggi. Það var búið að vara við möguleika á skriðu í mörg ár. Seyðfirðingar höfðu verið fullvissaður um að ef hætta væri fyrir hendi yrði bæjarbúum gert viðvart til að hægt væri að rýma. En þegar á hólminn var komið fóru viðvörunarbjöllurnar hins vegar ekki í gang. Veðurstofan viðurkenndi vanmat á aðstæðum, kannski skiljanlegt vanmat. En er það afsakanlegt vanmat? Kannski, af því að það fór ekki verr en það gerði, en kannski ekki, af því að þetta voru fordæmalausar aðstæður. Það er nefnilega málið með fordæmalausar aðstæður að það er erfitt að gera sér grein fyrir því hvað þurfi að gera en það á ekki að koma í veg fyrir að við reynum. Við þurfum að gera okkur grein fyrir því að um fordæmalausar aðstæður sé að ræða til að við byrjum að íhuga hvernig við getum glímt við þær.
Þar komum við að aðkomu Alþingis og ríkisstjórnar. Daginn eftir að skriðan féll afgreiddi Alþingi fjárlög. Þingmenn voru sannfærðir um að nægilegt fjármagn væri í neyðarsjóði til að takast á við hamfarirnar. Í upphafi árs tók ríkisstjórnin ákvörðun um að borga tvo þriðju hluta af kostnaði við hreinsunarstörf og styrkti björgunarsveitina á staðnum um 5 milljónir. Miðað við fréttir er það umfang aðkomu ríkissjóðs að málinu. Eða hvað? Fjárlaganefnd hefur alla vega ekki fengið neina áætlun eða a.m.k. yfirlit. Fram undan er ekki bara hreinsunarstarf á Seyðisfirði, það eru svæði sem eru ekki örugg, fólk sem býr á þeim svæðum, fólk sem hefur ekki fengið svör og hefur ekki enn flutt til síns heima. Óöryggið er of mikið, áfallið er of mikið. Því vil ég spyrja ráðherra einfaldrar spurningar: Hvaða svör höfum við til að skapa öryggi?