151. löggjafarþing — 50. fundur,  28. jan. 2021.

hreinsunarstarf á Seyðisfirði.

[11:02]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Þetta er sannarlega alvarlegt ástand sem hv. þingmaður lýsir hér og ríkisstjórnin hefur í nokkur skipti frá því að þessir atburðir áttu sér stað verið með málið á dagskrá. Þar er leitast við að veita heildaryfirsýn yfir stöðuna. Á endanum verður þetta samstarfsverkefni heimafólks, sveitarstjórnar á svæðinu, Múlaþings, og þeirra stofnana ríkisins sem eiga hlut að máli.

Það er rétt sem hv. þingmaður segir, að þetta voru fordæmalausar aðstæður. Það voru náttúruhamfarir sem þarna áttu sér stað varðandi úrhellið sem setti þessa atburðarás af stað. En við vissum fyrir að ákveðin hætta var til staðar. Það sem menn eru að reyna að gera núna, samhliða því að allt sjáanlegt tjón hefur verið metið, er að komast að niðurstöðu til lengri tíma um þá hluta byggðarinnar sem kunna að vera á hættusvæði. Þetta held ég að sé stærsta atriðið í augnablikinu sem er ósvarað.

Spurningin er: Hvernig getum við fengið rannsóknarniðurstöður til að byggja ákvarðanir á um skipulagsmálin í sveitarfélaginu? Það verður einfaldlega að svara þeirri spurningu: Er óhætt að búa í þessari götu til framtíðar? Ef ekki, hvar á uppbygging þá að eiga sér stað við flutning allra þeirra fjölskyldna sem í hlut eiga o.s.frv.? Staðan er þá sú í augnablikinu að þarna standa yfir rannsóknir til að bregðast við þessari stóru mikilvægu spurningu. Það er erfitt að fara í gegnum slíkt tímabil á meðan fjölskyldur eiga í hlut sem bíða niðurstöðu um þetta. Þær vilja auðvitað geta gert sínar áætlanir og það skiljum við öll mjög vel.