151. löggjafarþing — 50. fundur,  28. jan. 2021.

staða stóriðjunnar.

[11:31]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U):

Herra forseti. Ég staldraði við nokkur atriði í máli hv. þm. Bergþórs Ólasonar. Hann sagði að auðvitað vildi hann ekki að Ísland væri að selja orkuna sína á útsöluprís. En það vill svo heppilega til að núna í morgun aflétti Orkuveita Reykjavíkur trúnaði af einum orkusölusamningi sínum við Norðurál sem er ekki eldri en frá 2008. Þar kemur í ljós að fyrir þessa orku, sem er um 11% af því sem Orkuveitan framleiðir, fást ekki nema 2.500 kr. fyrir hverja megavattstund. Það er útsöluprís og það er þess vegna sem verður að endursemja þessa raforkusamninga. Fyrirtæki sem standa ekki undir því eru bara of veik.

Annað sem var rauður þráður hjá frummælanda málsins var að það væru miklar takmarkanir á orkuvinnslu í stefnu núverandi ríkisstjórnar. Það er bara della. Hann á nú að vita þetta þingmaðurinn, sitjandi í umhverfis- og samgöngunefnd sem hefur til meðferðar rammaáætlun með 1.400 nýjum MW í orkunýtingarflokki. Við framleiðum 2.500 MW í dag. Hvaða orkusvelti sér þingmaðurinn fyrir sér í stefnu ríkisstjórnarinnar þarna? Nú, eða í hálendisþjóðgarði með sínum 15 virkjunum sem dreifa sér eins og gatasigti á og við þjóðgarðinn? Hvað er verið að bremsa þar?

Varðandi alþjóðlega samhengið þá skulum við ekki gleyma því að við erum hluti af alþjóðlegu viðskiptakerfi með losunarheimildir þar sem komið var til móts við álver og aðra stóriðju með svokölluðum lekalista. Þessi iðnaður fékk gefins losunarheimildir en það hefur verið að trappast niður á undanförnum árum. Það er þróun sem við eigum að standa keik með og styðja. Ef það þýðir að fyrirtæki flytji til annarra ríkja þá á það (Forseti hringir.) ekki heldur að vera vandamál ef við stöndum okkur í alþjóðlegu baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Við eigum að hjálpa öðrum ríkjum (Forseti hringir.) að framleiða sjálfbæra orku sem ekki mengar. Varðandi það að Kína eigi mikið af kolaverum, hjálpum þeim að breyta því (Forseti hringir.) frekar en að nota það sem afsökun fyrir því að gefa stóriðjunni raforkuna okkar.