staða stóriðjunnar.
Virðulegur forseti. Þær eru misskynsamlegar, að mínu mati, ræðurnar hér en flestar mjög góðar, ég ætla að gera athugasemdir við þær í lokaræðu minni. Mig langar að þakka hæstv. ráðherra fyrir ágæta skýrslu sem hún hafði frumkvæði að að yrði tekin saman og unnin af Fraunhofer, þýsku fyrirtæki. Hún er mjög mikilvægt innlegg í grundvallarumræðu sem nauðsynlegt er að fari fram og gefur okkur fastara land undir fótum.
Ég skoðaði kynningu Landsvirkjunar á skýrslunni sem er ágæt, hún er aðgengileg á vef fyrirtækisins. Þar er sérstaklega komið inn á flutningskostnaðinn og ég vil lýsa yfir ánægju minni með að ráðherra hafi tekið fram áðan að tillagna sé að vænta mjög fljótlega inn til þingsins hvað það varðar. Í kynningu Landsvirkjunar á skýrslunni kemur líka fram að íslenskir stórnotendur njóti ekki, líkt og stórnotendur í Noregi og Þýskalandi, endurgreiðslna sem tengjast losun koltvísýrings vegna raforku í Evrópu, undir svokölluðu ETC-kerfi. Þetta eru auðvitað þættir sem þarf að ræða núna og við verðum að átta okkur á með hvaða hætti við getum stutt við að þessi fyrirtæki geti verið öflugir aðilar á vinnumarkaði og áfram mikilvægustu orkukaupendur Landsvirkjunar og orkufyrirtækjanna sem eru okkur svo gríðarlega mikilvæg.
Enn er staðan sú, eins og við þekkjum, að kaupendur áls t.d. virðast ekki vera tilbúnir að borga umframgjald eða premiu (Forseti hringir.) fyrir þetta grænasta ál í heimi, en það verður vonandi breyting á því fljótlega. Ég kem síðan í lokaræðu mína hér á eftir og súmmera upp umræðuna eins og hún horfir við mér.