staða stóriðjunnar.
Herra forseti. Ég held að það sé óhætt að segja að vatnsvirkjunarskeiðinu í Íslandssögunni fari senn að ljúka. Það eru einfaldlega fáir góðir kostir eftir og andstaðan í samfélaginu er mikil. Sem betur fer, segi ég, en ég veit að það getur verið að aðrar skoðanir séu uppi hér í þingsal. En þá er að leita annarra kosta vegna þess að þetta er staðan sem við stöndum frammi fyrir. Vindurinn er þar ein raunhæfasta lausnin. Hægt er að ná gríðarmikilli raforkuframleiðslu á vindmyllusvæði sem skilur síðan ekki eftir sig nein spor, vilji menn ganga til baka. Vindorkan er mest yfir vetrartímann á meðan ár eru vatnsminnstar og hratt gengur á miðlunarlónin. Samnýting vindmyllugarða og þeirra vatnsaflsvirkjana sem við eigum nú þegar getur tryggt stöðuga framleiðslu og raforkuöryggi í langan tíma án þess að því fylgi sama náttúrurask og er af uppistöðulónum. Því til viðbótar gerir hröð framþróun í raforkugeymslu vindmyllur að enn sterkari valkosti. Árstíðabundnar breytingar á vindafari hafa minni áhrif en ella. Þetta þarf að skoða til hlítar og er raunar verið að skoða vel, m.a. varðandi tilheyrandi neikvæð áhrif á varpsvæði fugla, svo dæmi sé tekið.
Að þessu sögðu stendur eftir í þessari umræðu allri að orkuverð í heiminum fer ört hækkandi, sem þýðir að ef við höldum rétt á spöðunum mun öll atvinnustarfsemi á Íslandi njóta samkeppnisforskots, sem felst í því að við höfum ódýra, græna, sjálfbæra orku hér um ókomin ár. Í ljósi þessarar stöðu er ekki raunveruleg þörf á því að niðurgreiða orkuna til stóriðju eða annarra einstaka atvinnuvega eða að láta þessa sömu atvinnuvegi á einhvern hátt hafa forgang fram yfir aðra í íslensku hagkerfi, ef við höfum aðra atvinnuvegi sem skapar fleiri störf (Forseti hringir.) fyrir hverja nýtta kílóvattstund.
Raforkan okkar er takmörkuð auðlind og við þurfum að hugsa um hagsmuni heildarinnar og þar tek ég sannarlega náttúruna með. (Forseti hringir.) Fátt snertir hagsmuni heildarinnar meira en hún í þessum útreikningum okkar.