um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég vil bara segja í þessu samhengi að þegar umræðan var stöðvuð á sínum tíma var óskað eftir því að gestur kæmi fyrir nefndina og fundur yrði haldinn, sem var gert. Það hefur líka alltaf legið fyrir að málið yrði tekið fyrir í nefndinni á milli 2. og 3. umr. Það stóð ekki til að taka málið af dagskrá heldur var það bara sett á bið, eins og fram kom á sínum tíma, til þess að gestakoman sem óskað var eftir ætti sér stað. Kjósi menn að vera með framhaldsálit eða eitthvað slíkt eftir 2. umr., þegar búið er að ljúka þeirri umræðu og taka málið formlega inn, er öllum það frjálst. En það væri óeðlilegt ef stöðva þyrfti umræðuna hér í annað sinn til að taka inn gesti og halda fundi um þetta tiltekna mál. Ég man alla vega ekki eftir því að slíkt hafi átt sér stað, en ég get auðvitað alls ekki fullyrt um það. Það má vel vera að slíkt hafi verið gert en ég tel bara alls ekki að þess þurfi. Það er búið að halda þann fund sem óskað var eftir og málið fer til nefndarinnar að þeirri umræðu lokinni.