um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Í þessu samhengi verð ég bara að vísa í orð hv. formanns atvinnuveganefndar, Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, í gær, sem hittist þannig á að er 1. flutningsmaður málsins og framsögumaður nefndarálits; það verður ekki þéttar um taumana haldið í þessu tiltekna máli. Af orðum hv. þingmanns í gær var ekki hægt að ráða annan skilning en þann að það hvernig skilið var við málið 7. desember hefði ekki verið uppfyllt með þeim fundi sem haldinn var 8. desember. En ég vek sérstaklega athygli á því að nefndarmenn þurfa bara að ræða þetta sín á milli. Það blasir við að málið er hér á dagskrá og kemur til umræðu. Minn skilningur er sá að vinnan í nefndinni, og er ég vissulega ekki nefndarmaður, hafi ekki verið á þeim forsendum sem skilningur flestra þingmanna hafi verið í lok umræðu 7. desember.