um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Ég ætla bara aðeins að koma hingað upp til að árétta það sem hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir var að tala um, að þetta mál hefði verið kallað inn á milli umræðna fyrir jól. Það er rétt en það sem við vorum að meina í því sambandi var að ekkert var gert með málið í nefndinni; það var ekki tekið á því sem bent var á af gesti nefndarinnar, dr. Stefáni Má Stefánssyni. Það var þess vegna sem okkur rak í rogastans að það væri komið aftur á dagskrá án þess að nokkurt tillit hefði verið tekið til þess.