151. löggjafarþing — 50. fundur,  28. jan. 2021.

samvinnufélög o.fl.

56. mál
[12:06]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Hæstv. forseti. Þetta hefur verið áhugaverð umræða um mál sem lætur í sjálfu sér ekki mikið yfir sér. Þetta er kannski prinsippmál að mörgu leyti, snýst um það hvort beita eigi sektum eða ekki til að hvetja enn frekar til jöfnunar kynja í stjórnum fyrirtækja yfir ákveðinni stærð.

Ég viðurkenni alveg fúslega, herra forseti, að í gegnum árin sem stjórnmálamaður, ætli séu ekki orðin yfir 20 ár síðan maður gerist atvinnustjórnmálamaður, hefur maður sveiflast, reyndar löngu fyrir það, í afstöðunni til þess hvort kynjakvótar og slíkt eigi rétt á sér. Stundum hef ég ekki verið alveg viss en stundum verið það, svo að það sé bara sagt heiðarlega. Ég held hins vegar að það sé ekki rétt að fara þessa leið, að fara of mikið af stað með þessi sektarákvæði, og alls ekki í þessu máli þegar það gengur þokkalega að fjölga konum í stjórnum. Það mætti ganga hraðar, við getum alveg verið sammála um það. Það má líka velta því upp hvort við eigum að horfa til annars konar hvata til þess að þetta geti gengið hraðar ef stjórnvöld vilja hraða ferlinu með einhverjum hætti, ef við Alþingismenn treystum ekki fyrirtækjunum eða atvinnurekendum til að ná þessu markmiði. Ég treysti þeim reyndar alveg til þess.

Það var mjög gaman að sjá fylgiblað að ég held Fréttablaðsins í gær þar sem voru margar blaðsíður með umfjöllun um mörg afrek kvenna í atvinnurekstri eða í stjórnun fyrirtækja og hversu mikið það skiptir máli í dag að kynin séu að vinna saman að því að búa hér til öflugt atvinnulíf. Það var mjög áhugavert að sjá hve margar konur eru frumkvöðlar og þær hafa búið til heilmikinn rekstur í kringum hugmyndir sínar. Þær stýra margar hverjar mjög stórum fyrirtækjum og mættu að sjálfsögðu vera fleiri við stjórn stærstu fyrirtækja landsins. Þarna fengum við vísbendingu um að gróskan er mikil og mikið hefur gerst.

Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að í gegnum tíðina hafi ákveðin atriði skipt miklu máli í jafnréttisbaráttu okkar. Barátta kvenna hér á áttunda áratugnum, mótmæli og fundir kringum 1975, allt sem gerðist þá, kjör Vigdísar Finnbogadóttur, forseta Íslands, o.s.frv. eru allt hlutir sem hafa skipt gríðarlega miklu máli í jafnréttisbaráttu á Íslandi. Við erum öll stolt af því. Við erum hins vegar kannski ekki öll sammála um hvaða leiðir eigi að fara í þeirri baráttu. Ég held við séum öll sammála um að jöfn staða og réttur Íslendinga, kynjanna og Íslendinga allra, eigi að vera sem mestur og eigi bara að vera klár, að menn eigi sama rétt og eigi sömu tækifæri til að vaxa og þroskast og komast til áhrifa. Ég held sem betur fer að það sé til staðar í dag. Ég hef oft sagt að ég hef fulla trú á því að tækifærin séu meiri og betri í dag, hvort sem er fyrir konur, karla eða fólk sem skilgreinir sig af öðru kyni, en þau hafa nokkurn tímann verið. Svo getur okkur greint á um hvort gera þurfi eitthvað meira til þess að gera þau enn þá opnari og betri. Ég held að þetta mál sé ekki til þess fallið. Ég get tekið undir það sem fram hefur komið hjá nokkrum þingmönnum að þetta snertir svolítið prinsipp sem við erum með í stjórnarskránni okkar, þ.e. eignarréttinn, rétt einstaklinga til að búa til fyrirtæki og eiga öflug fyrirtæki. Við ætlum hins vegar að segja að ef þeim gengur ákveðið vel, ef þau stækka, þá þurfi að uppfylla ákveðnar reglur sem ríkið setur og ætlar að grípa inn í hugmyndafræði þeirra um fyrirtækið sitt.

Herra forseti. Ég veit um dæmi — ég ætla ekki að nefna það hérna, ég er ekki viss um að viðkomandi kæri sig neitt um það — þar sem fyrirtæki hefur ákveðið að vaxa ekki þrátt fyrir möguleika á því vegna þess að menn sáu fram á að geta ekki uppfyllt kröfurnar um jafna eða sem jafnasta stöðu kynjanna í stjórn fyrirtækisins án þess að leita langt út fyrir þann hóp sem hefði áhuga eða þekkingu á fyrirtækinu. Kannski hefði verið hægt að komast hjá þessu með einhverjum hætti, ég veit það ekki, fá mömmu, ömmu eða einhvern til að taka þátt í því en það er náttúrlega ekki markmið laganna heldur. Við verðum svolítið að skoða þessa heildarmynd, herra forseti, hvernig okkur hefur gengið og hversu langt við eigum að ganga í að búa til viðurlög við öllu þessu.

Það vakti athygli mína að þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, talaði hér og ég gat ekki skilið hv. þingmann öðruvísi en að öllum þeim lögum sem sett eru eigi að fylgja einhvers konar viðurlög. Ég held að við eigum ekki að fara þá leið sem hv. þingmaður vill fara, að fara í einhverja gríðarlega refsivæðingu laganna. Auðvitað þurfa að vera viðurlög við ákveðnum hlutum, ég held að við séum flest sammála um það, en þurfa þau endilega að vera alls staðar?

Við búum í landi þar sem eru mjög ójöfn kynjahlutföll í sumum stéttum. Hér hafa verið nefndir heilbrigðisstarfsmenn og kennarar jafnvel. Ég held að við eigum að reyna að horfa á þetta þannig að við gefum þessu ágæta fólki, ég nefni aftur heilbrigðisstarfsfólk, tækifæri til að vaxa í starfi og fá betri laun og betri kjör. Það gerum við, held ég, með því að opna meira á þann möguleika að einkaaðilar geti verið í þeirri starfsemi, þeir geta þá keppt um starfsfólkið og boðið mögulega betur. Auðvitað verður ríkið þá að standa í lappirnar og bjóða betur og þá er samkeppni um þessa starfskrafta. Ég hugsa að þetta gæti verið eitt af risastórum jafnréttismálum, að auka samkeppni á vinnumarkaði um starfskrafta þessara hópa, þessa frábæra fólks. Þar nefni ég bara sem dæmi heilbrigðisstarfsmenn.

Herra forseti. Ég er mjög hugsi yfir því hvernig vinnubrögðin hafa verið í nefndinni í þessu máli. Einn hv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Njáll Trausti Friðbertsson, flutti ræðu um málið eftir að það kom hingað til 2. umr. Ég fór yfir ræðuna og mér er algerlega óskiljanlegt hvernig þingmaðurinn gat stutt það að málið færi út úr nefndinni. Auðvitað var á endanum settur fyrirvari og þingmenn Sjálfstæðisflokksins voru allir þrír með fyrirvara á málinu. Eftir því sem mér skilst kom það nú frekar seint til að sá fyrirvari yrði til. Ef ræðan er skoðuð og farið í gegnum hana eru í henni vangaveltur og hugsanir og jafnvel yfirlýsingar sem hefði átt að ræða í nefndinni og fá botn í áður en þessir ágætu alþingismenn ákváðu að taka málið út. Svo var samþykkt að taka málið út úr nefndinni og þá koma menn hér í ræður og spyrja spurninga sem þeir eiga að fá svör við í nefndinni, hæstv. forseti. Þetta er mjög sérstakt. Mig langar að vitna, með leyfi forseta, í nokkur atriði í þessari ágætu ræðu:

„Í vinnu nefndarinnar kom fram að við vildum vinna þetta lengra og fá frekari upplýsingar til að ræða í nefndinni.“

Af hverju var það ekki gert áður en málið fór út úr nefndinni? Svo segir, með leyfi forseta:

„Strax í þeirri vinnu, áður en málið gekk til 2. umr., kom fram að það myndi fara aftur til nefndar milli 2. og 3. umr.“

Þetta er einhver svona eftiráskýring. Hv. þingmaður er greinilega á harðahlaupum frá málinu vegna þess að hann var búinn að samþykkja að taka það út úr nefndinni. Síðan fer þingmaðurinn í gegnum málið, rekur það að nokkrum hluta, og veltir því upp hvort ný lagasetning sé nauðsynleg. Þá fer hann yfir lagasetningu í öðrum löndum og segir, með leyfi forseta:

„Þá þarf að rekja áhrif samsvarandi lagasetningar í þeim löndum sem við berum okkur iðulega saman við og lýsa kostum og göllum þeirra leiða sem til greina koma. Það hefur ekki verið gert með nægilegum hætti í því máli sem við erum að ræða hér.“

Þingmaðurinn segir bara: Við unnum málið ekki nógu vel í nefndinni. Við leituðum ekki svara við þessum spurningum. Hvers vegna í ósköpunum var málið þá tekið út úr nefnd? Það er algjörlega óskiljanlegt, hæstv. forseti. Áfram er haldið í þessari merku ræðu og ég vil hér, með leyfi forseta, koma inn á eina setningu sem hv. þingmaður segir:

„Er ætlunin með frumvarpinu að þvinga fyrirtæki sem hafa verið með óbreytta stjórn í 20 ár til að breyta stjórn? Hver er tilgangurinn? Er það ekki fremur hluthafanna að vera vakandi fyrir því í aðdraganda aðalfunda hvernig stjórn er skipuð?“

Herra forseti. Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hlýtur að hafa átt að ræða og fá svör við þessu í nefndinni áður en hann samþykkti að taka málið út. Mér leikur forvitni á að vita, nú hlýtur að vera mjög langur listi yfir hluti sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru búnir að fatta núna allt í einu eftir að þeir tóku málið út úr nefnd að þurfi að spyrjast fyrir um milli umræðna. Það hlýtur að þurfa að verða einhver mikil stefnubreyting hjá hv. þingmönnum ef þeir ætla ekki að taka málið aftur úr nefndinni eftir 2. umr. miðað við það sem hefur komið fram í þessari ræðu sem ég vitnaði í. Ég held áfram að vitna í ræðu hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar, með leyfi forseta:

„Við eigum að forðast að flækja um of löggjöf um þessi efni. Mikilvægara er að löggjöfin sé skýr og að aðilar beri ábyrgð á því að þeirri löggjöf sem þingið samþykkir sé framfylgt. Því eiga löggjafinn og stjórnvöld ekki að fara í enn frekari íþyngjandi aðgerðir gagnvart atvinnulífinu. Þetta er tóm forræðishyggja …“

Ég vil taka fram að einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins er flutningsmaður á þessu máli og aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins samþykktu að taka málið út úr nefnd en hafa svo fengið bakþanka vegna þess að búið er að sýna fram á hvers konar vitleysa þetta mál er í rauninni, að fara þá leið að beita fyrirtæki sektum með þessum hætti. Hér hefur hver þingmaðurinn á fætur öðrum komið upp og sagt að málið eigi að ganga til nefndar milli 2. og 3. umr. Það er kannski einhver samkeppni í því að kalla málið til nefndar en það er vitanlega löngu komið fram að það verður gert.

Mig langar líka að nefna hér aðeins ræðu sem hv. þm. Brynjar Níelsson hélt hér í gær, mjög góða ræðu, þar sem var einmitt velt upp þessu mikilvæga atriði sem fleiri þingmenn hafa einnig velt upp, rétti fólks til að haga sínum eignum eins og það telur best. Ég hef nú sagt hér í þessum ræðustól og segi enn að mér finnst sú ríkisstjórn sem nú situr hafa farið með samfélagið langt til vinstri, við sjáum það í heilbrigðismálum og öðrum málum, og hafa þeir flokkar sem skipa hana ásamt sósíalistunum ekki staðið sig í því að standa vörð um réttindi einstaklinga og borgaraleg réttindi, finnst mér. Þetta mál er einmitt af þeim toga. Ég vil samt taka fram að ég held að engin ill meining sé á bak við málið hjá flytjanda þess. Ég er bara ekki sammála og held að ákveðinn misskilningur sé í aðferðafræðinni.

Einhvern veginn er það þannig að þegar við viljum ná einhverjum hlutum í gegn, herra forseti, þá dettur mönnum yfirleitt fyrst í hug einhver refsing. Það á að hækka bensínkostnað eða olíukostnað Íslendinga sem þurfa að nota bíla af því að lagður er á einhver skattur. Menn fara ekki þá leið að verðlauna þá sérstaklega sem eru tilbúnir til að skipta yfir í umhverfisvæn ökutæki, t.d. með einhvers konar ívilnunum, frekari ívilnunum en eru í dag. Af hverju ekki að verðlauna fyrirtæki t.d. fyrir að skipta sínum stóru bílaflotum yfir í rafknúin ökutæki, vetnisökutæki sem eru til í dag o.s.frv.? Það er jákvæður hvati að endurgreiða hluta af kostnaði. Þá má líka velta fyrir sér í sambandi við þetta mál, ef við viljum hraða ferlinu að ná jöfnun í stjórnum fyrirtækja, hvort jákvæðari leiðir séu til í því. Er hægt að leyfa fyrirtækjum að nota einhvers konar frádrátt af stjórnunarkostnaði ef þau eru með rétta kynjasamsetningu í stjórn miðað við gildandi lög? Á að taka þátt í kostnaði stjórnar í ákveðinn tíma? Ýmsar leiðir eru til, ef menn hugsa svolítið út fyrir boxið, ef menn vilja hraða ferlinu. Það þarf ekki bara að sekta og koma þannig jafnvel í veg fyrir að fyrirtæki kjósi að stækka eða þá að fyrirtæki þurfi einhvern veginn að hverfa frá þeirri hugsun að þetta sé einkafyrirtæki eða réttur eiganda fyrirtækisins til að ráðstafa eign sinni.

Hér hafa þingmenn líka komið upp og sagt að þetta sé frelsismál, þetta sé jafnréttismál. Eins og hv. þm. Brynjar Níelsson hefur nefnt hér, og fleiri, snýst þetta um jafna stöðu. Réttindin eru alveg til staðar. Enginn bannar konum eða einhverjum einstaklingum að sitja í stjórnum fyrirtækja. Það þarf ekki að breyta lögum til að búa til sérstakan rétt eða jafna réttindi þeirra. Það væri jafnréttismál að mínu viti. En hugsunin með þessu máli virðist vera að jafna stöðu. Ég held, herra forseti, að við eigum að reyna að nálgast það mál út frá jákvæðari augum kannski, með hvatana að vopni frekar en refsinguna.

Einhvern veginn hefur það verið viðhorf undanfarin ár, kannski miklu lengur, að ríkið sé að segja okkur meira fyrir verkum, skoða og fylgjast meira með því sem við erum að gera. Ég held að það sé ekkert sérstaklega gott. Einstaklingurinn þarf að hafa frelsi og geta notið sín. Á ekki að setja á fót einhverja upplýsingaóreiðunefnd eða eitthvað slíkt? Hvað á sú nefnd að gera nákvæmlega? Eru menn sammála því að skrúfa hér fyrir að menn geti haft ákveðnar skoðanir þó að okkur þyki þær ömurlegar og hryllilegar og getum ekki samsamað okkur með þeim, hvort sem það er varðandi helförina eða hvað menn segja á Twitter? Ég hef áhyggjur af því að við séum að fara sem samfélag svolítið langt á þessa leið, herra forseti.

Ég nefni þetta bara hér í því samhengi vegna þess að ríkisvaldið er alltaf að seilast inn í umhverfi okkar og stýra því meira og meira. Ríkisvaldið á að mínu viti fyrst og fremst að búa til einhverja umgjörð þar sem okkur eru tryggð ákveðin réttindi og slíkt. Við eigum svo að fá frelsi til að starfa innan þeirra réttinda. Að sjálfsögðu eiga líka að vera refsingar fyrir brot sem eru sannarlega alvarleg og menn nefndu hér umferðarlagabrot í gær. Ef þú keyrir yfir á rauðu ljósi og ekur á fólk þá er refsað fyrir það að sjálfsögðu. En það er ekki hægt að líkja því við hugsunina hér að mínu viti.